Rifta samningi við Björn Inga Hrafnsson

Vegna fyr­ir­sjá­an­lega van­efnda á greiðslu kaup­verðs og slæmrar fjár­hags­stöðu Pressunnar ehf. hefur kaupum á tíma­rita­út­gáf­unni Birtíngi verið rift. Björn Ingi Hrafns­son segir starfs­fólk sitt vera á of háum launum, en sjálfur fær hann 1,9 millj­ónir króna í laun.

Rifta samningi við Björn Inga Hrafnsson
Björn Ingi Hrafns­son Heldur úti þætt­inum Eyjunni á ÍNN. Mynd: Skjáskot af ÍNN

Vegna „mjög slæmrar fjár­hags­stöðu“ Pressunnar ehf. hefur kaupum hennar á tíma­rita­út­gáf­unni verið rift. 

Umfangs­mikil upp­kaup fjöl­miðla­veldis Björns Inga Hrafns­sonar á íslenskum fjöl­miðlum hafa þannig orðið fyrir bakslagi. 

Þetta var til­kynnt í bréfi til starfs­manna Birtíngs, sem gefur út Séð og heyrt, Nýtt líf, Gest­gjafann, Vikuna og fleiri tíma­rit.

„Ástæða rift­un­ar­innar eru fyr­ir­sjá­an­legar van­efndir á greiðslu kaup­verðs vegna mjög slæmrar fjár­hags­stöðu Pressunnar ehf. Það verður því ekk­ert úr fyr­ir­hug­aðri sam­ein­ingu Birtíngs við sam­stæðu Pressunnar ehf,“ segir í bréf­inu til starfs­manna frá fram­kvæmda­stjóra Birtíngs, Karli Steinari Ósk­ars­syni.

Fjárfestar hættir við aðkomu

Kaup Pressunnar á Birtingi voru til­kynnt með yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla fyrir hálfu ári síðan. Eins og kom fram í frétt Stund­ar­innar um málið var starfs­mönnum Birtíngs til­kynnt við kaupin að sterkir fjár­festar væru að baki Birni Inga Hrafns­syni.

Kjarninn greindi frá því í dag að fjár­festar sem boðað hafði verið að myndu leggja 300 millj­ónir króna í Pressu­veldi Björns Inga, hefðu hætt við, þar sem um 700 millj­ónir króna skuldir hafi safn­ast upp í félag­inu og að þeim hefðu verið gefnar vill­andi upp­lýs­ingar um stöðu félags­ins. Eitt af skil­yrðum fjár­fest­anna, sam­kvæmt Kjarn­anum, var að Björn Ingi og fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Arnar Ægisson, færu alfarið úr rekstr­inum. Annað var að sam­eina starf­sem­ina undir einu þaki, og að skera niður kostnað æðstu stjórn­enda, þar sem komið hefði í ljós að stjórn­endur hefðu um tvær millj­ónir króna í mán­að­ar­laun, jafn­vel þótt und­ir­mönnun væri á rit­stjórnum.

Fjár­fest­arnir hafa hins vegar lánað félög­unum fé til þess að koma í veg fyrir að Toll­stjóri inn­sigli starfs­stöðvar vegna van­greiðslu á opin­berum gjöldum, sam­kvæmt Kjarn­anum.

Sagði starfsmenn vera á of háum launum

Björn Ingi sagði í bréfi til starfs­manna Pressunnar og DV að honum hefði verið gerð grein fyrir því að hann greiddi starfs­mönnum sínum of há laun. „Við erum að greiða starfs­fólki okkar hærri laun en gengur og ger­ist (eða svo er okkur sagt) og kannski höfum við verið of róm­an­tískir að halda úti efn­is­þáttum sem ekki standa undir sér. Við höfum lagt mikla áherslu á jákvæðan starfsanda og að starfs­fólki líði eins og það sé hluti af stórri fjöl­skyldu.“

Samkvæmt tekju­blaði DV í fyrra hafði Björn Ingi tæpar 1,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun árið áður.

Stundin greindi frá því í jan­úar að farið hefði verið fram á nauð­ung­ar­upp­boð á mikið veð­settu húsi hans í Hval­firði, aðeins mán­uði eftir að til­kynnt var um kaup fjöl­miðla­veldis hans á tíma­rita­út­gáf­unni Birtíngi. Björn Ingi sagði á Facebook að reynt væri að koma höggi á sig með birt­ingu frétt­ar­innar.

„Þetta er alveg mögnuð frétt. Stundin veit að þetta er ekk­ert mál og ég útskýrði það fyrir þeim og sagði að þetta hefði ekk­ert með fjöl­miðla­rekstur minn að gera ... Viljinn til að koma höggi á fólk eru svo mik­ill ... Mér finnst þetta bara skammar­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár