Karlmenn verða fyrir misrétti: „Dó konan þín?“

Feðra­veldið eða kynja­kerfið skað­legt bæði körlum og konum, segir lektor í kynja­fræði. Dæmi um að feður segi sonum sínum að strákar eigi ekki að faðma pabba sinn.

Er hann perri?
Er hann perri? Svavar Knútur seg­ist finna fyrir því að fólk haldi að hann sé perri ef hann heilsar upp á börn og leikur við þau. Mynd: Pressphotos

Und­an­farna daga hefur Twitter-bylt­ingin um hvers­dags­legt kynja­mis­rétti, þar sem myllu­merkið #6dags­leik­inn er notað, vakið athygli. Fjöl­margir hafa sagt frá reynslu sinni á sam­skipta­miðl­inum, karlar jafnt sem konur. Eitt af því sem bylt­ingin hefur opin­berað er kynja­mis­réttið sem karl­menn finna á eigin skinni.

Gyða Margrét Pétursdóttir
Gyða Margrét Pét­urs­dóttir

„Femínísk bar­átta snýst um að breyta sam­fé­lag­inu. Oft er þessi orð­ræða í gangi að femín­ismi sé bara fyrir konur, en feðra­veldið eða kynja­kerfið, hvað sem við köllum það, er tak­mark­andi bæði fyrir konur og karla,“ segir Gyða Margrét Pét­urs­dóttir, lektor í kynja­fræði, í sam­tali við Stundina. „Þetta kerfi er skað­legt bæði körlum og konum. Það bindur okkur á klafa þess­ara kyn­hlut­verka og kemur í veg fyrir að við fáum notið okkar á eigin for­sendum.“

Uppeldishlutverkið: „Á þetta barn ekki mömmu?“

Margir tjá sig um ólíkar kröfur sem gerðar eru til kynj­anna hvað varðar upp­eldi barna. Karlmenn séu til dæmis spurðir hvað þeir ætli eig­in­lega að gera í fæð­ing­ar­or­lof­inu. Gyða segir sam­fé­lagið ekki ætl­ast til þess að karlar sinni börnum sínum með sama hætti og hjá konum. Það birt­ist til dæmis á almenn­ings­sal­ernum þar sem ekki er höfð aðstaða fyrir feður til þess að skipta á unga­börnum, en sú aðstaða sé hins vegar á kvennakló­settum. „Það er hins vegar ekki algilt,“ segir Gyða. „Víða hefur orðið vit­und­ar­vakn­ing varð­andi það.“

Annað dæmi sem Gyða nefnir varð­andi ólík upp­eld­is­hlut­verk kynj­anna er úr skóla­kerf­inu, en þar er gjarnan hringt frekar í mömm­urnar heldur en pabbana ef það þarf að ná í for­eldra. 

Karlmennskan: „Faggi eða stelpa fyrir að æfa leiklist, söng og dans“

Nokkrir karl­menn lýsa því einnig hvaða hlut­verkum þeir eigi að gegna og hvaða áhuga­mál þeir eigi að hafa vegna kyns síns. Þannig segir einn frá því að það sé litið horn­auga að kona hans hafi meiri áhuga á verk­færum en hann og annar seg­ist iðu­lega vera kall­aður annað hvort faggi eða stelpa fyrir að æfa leik­list, söng og dans. Þá seg­ist einn fá „skrítin lúkk“ þegar hann er með eyeliner eða vara­lit á djamm­inu. „Þetta end­ur­speglar svo vel þetta kerfi að þegar karlar gera upp­reisn, og vilja ekki fara inn í þetta karl­mennsku­hlut­verk eins og sam­fé­lagið skil­greinir það, þá eru þeir kven­gerðir. Þetta segir svo ótrú­lega margt um sam­fé­lagið okkar að þegar karl­menn sína ein­hverja eig­in­leika sem eru eign­aðir konum þá eru þeir um leið komnir í ein­hverja und­ir­skip­aða stöðu.“

Karlmenn virð­ast ekki hafa eins mikið rými til þess að sýna til­finn­ingar sínar eins og konur, sýni þeir til­finn­ingar sínar eru þeir sagðir vera að væla. Gunnar F segir einnig frá því á Twitter að pabbi hans hafi neitað að faðma sig því „strákar eiga ekki að faðma pabba sína!“ 

„Strákar eiga ekki að faðma pabba sína!“ 

„Maður fær nátt­úr­lega sting í hjartað,“ segir Gyða. „Þetta er hluti af þessu að þú eigir alltaf að vera stór og sterkur og ekki láta neinn bil­bug á þér finna. Inn­vígslan inn í karl­mennsku­hlut­verkið snýst svo­lítið um þetta að vera kaldur til­finn­inga­lega og geta harkað af sér.“

Margir tala um það að karl­menn eigi alltaf að vera til í kyn­líf. Þeir megi til dæmis ekki eiga konur sem vini án þess að vilja sofa hjá þeim. „Þetta er mjög skýrt dæmi og teng­ist þessum hug­myndum um karla. Þeir séu algjör­lega óseðj­andi kyn­ferð­is­lega og þeim sé nokk sama um allt ef þeir fái að ríða. Þegar kemur að kyn­lífi þá skipti til­finn­ingar engu máli. Þetta getur verið mjög hamlandi og gefur mjög skakka mynd af til­finn­inga­lífi karla.“

Kerfið ekki ýtt eins við körlum að mennta sig eins og konum

Hersir Aron Ólafsson birti mynd af kynja­hlut­föllum innan Háskóla Íslands, en þar hallar veru­lega á karl­menn. „Þetta hefur einmitt verið útskýrt út frá þessum karl­mennsku hug­myndum,“ segir Gyða og bendir á að Ingólfur Ásgeir Jóhann­es­son, pró­fessor á mennta­vís­inda­sviði, hefur einmitt fjallað um það að karl­menn kom­ist frekar áfram á eigin verð­leikum og þurfi því ekki að mennta sig. Það sé í raun­inni lyk­ill­inn að jafn­rétti að ef konur afli sér mennt­unar þá séu þeim allir vegir færir. „Kerfið hefur ekki ýtt eins við körlum að mennta sig eins og konum, heldur fá þeir frekar þau skila­boð að menntun sé bara fyrir kerl­ingar og þeim séu allir vegir færir út frá eigin verð­leikum. En þá er líka svo athygl­is­vert að skoða hópa atvinnu­lausra kvenna, því sá hópur sem stækkar hvað mest eru mennt­aðar konur. Hversu miklu skilar menntun kvenna sér?“ spyr Gyða.

Hún segir mjög slæmt að hlut­föllin séu með þessum hætti en bendir jafn­framt á að körlum hafi einnig fjölgað í háskóla á und­an­förnum árum, þó svo að konum hafi fjölgað meira. „En karlar virð­ast líka hafa meiri aðgang að störfum þar sem ekki er kraf­ist form­legrar mennt­unar heldur en konur, störfum sem gefa samt sem áður vel í aðra hönd. Hvatinn er því ekki eins mik­ill að mennta sig,“ segir hún.  

Þurfa að gangast við forréttindum sínum

Áherslan í fem­inískri bar­áttu und­an­farin ár hefur verið á það hvernig hægt sé að vekja karl­menn til umhugs­unar um stöðu sína í sam­fé­lag­inu. „Ef það er hægt að leiða karl­mönnum fyrir sjónir hversu skað­legt þetta kerfi er þeim líka þá eru þeir kannski til­búnir til að fara að beita sér fyrir jafn­rétti kynj­anna. Á sama tíma er gott að hafa í huga að karl­menn njóta ákveð­inna for­rétt­inda í þessu kerfi og þeir þurfa að gang­ast við þessum for­rétt­indum sjálfir. Það er alltaf hollt fyrir for­rétt­inda­hóp að velta fyrir sér stöðu sinni. Alveg eins og það er hollt fyrir hvíta Íslend­inga að velta fyrir sér þeim for­rétt­indum sem fel­ast í því að vera með hvíta húð,“ segir Gyða að lokum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár