Hér geturðu horft á kappræður forsetaframbjóðenda í heild

Kapp­ræður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media með for­seta­fram­bjóð­endum fóru fram í Gafl­ara­leik­hús­inu í Hafn­ar­firði.

Hér geturðu horft á kappræður forsetaframbjóðenda í heild

Kapp­ræður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media með for­seta­fram­bjóð­endum standa nú yfir í Gafl­ara­leik­hús­inu í Hafn­ar­firði. 

Sýnt er frá umræð­unum í beinni útsend­ingu á Facebook en tekið er við spurn­ingum áhorf­enda í gegnum Facebook og Twitter. Þeir sem fylgj­ast með eru hvattir til að taka þátt í gegnum myllu­merkið #kosn­inga­stundin.

Greint verður frá helstu tíð­indum kvölds­ins í beinu frétta­streymi hér að neðan. 

Kl. 21:28 – Kapp­ræð­unum er lokið. Stundin og Reykja­vik Media þakka þeim sem hlýddu og sendu inn spurn­ingar.

Kl. 21:27 – Loka­spurn­ing: Ef þú værir ekki í fram­boði, hvern mynd­urðu kjósa? Sturla og Ástþór vilja ekki annan for­seta en sjálfan sig en hinir eru jákvæð­ari í garð mót­fram­bjóð­enda sinna. Elísabet myndi kjósa Andra Snæ.

Kl. 21:20 – Nú er rætt um hitt og þetta. Hildur Þórð­ar­dóttir segir fjöl­miðla slíta orð sín ítrekað úr sam­hengi, alhæfa og snúa út úr. Ástþór seg­ist hafa bíla­inn­flutn­ing og ljós­myndun að atvinnu. Elísabet segir að kom­inn sé tími til að for­set­inn geri ekki neitt. 

Kl. 21:10 – Í hraða­spurn­ingum kom í ljós að allir for­seta­fram­bjóð­endur telja órétt­læt­an­legt að nota skatta­skjól. Halla vill vera málsvari íslenskra fyr­ir­tækja á erlendum vett­vangi svo lengi sem það er gert á grund­velli góðra siða­reglna. Hinir fram­bjóð­end­urnir eru á öðru máli, fyrir utan Sturlu Jónsson sem er sam­mála Höllu.

Kl. 21:04 – For­seta­fram­bjóð­end­urnir eru sam­mála um að hlúa verði betur að flótta­mönnum sem leita hér hælis. Guðni vill almennt liðka fyrir komu útlend­inga utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins til lands­ins. Ástþór varar hins vegar við því að Ísland taki á móti mörgum flótta­mönnum og Guðrún vill leit­ast við að hjálpa þeim sem þegar eru komnir til Íslands. Elísabet segir fram­göngu Íslend­inga gagn­vart flótta­mönnum til hábor­innar skammar.

Kl. 20:54 – Fimm hraða­spurn­ingum er lokið og fram­bjóð­endur hafa gert grein fyrir svörum sínum. Guðni Th. var aftur spurður hve mikið hann teldi kosn­inga­bar­áttu sína hafa kostað. Hann sagði kostn­að­inn hlaupa á millj­ónum en kosn­inga­bar­átt­una varla hafa kostað meira en 20 millj­ónir.

Kl. 20:45 – Sturla Jónsson seg­ist ekki aðeins ætla að leggja fram frum­varp um bann við verð­trygg­ing­unni heldur hafi hann líka áhuga á að breyta umferð­ar­lögum.

Kl. 20:40 – Guðni Th. Jóhann­es­son seg­ist vilja að for­seti Íslands standi utan átaka­lína til hægri og vinstri og standi utan fylk­inga og flokka. Aðspurður hvernig hægt sé að vera bæði félags­hyggju­maður og frjáls­hyggju­maður segir Guðni að taka þurfi það besta úr öllu. Bæði eigi að reka gott vel­ferð­ar­kerfi sem haldi utan um alla og gefa fólki frelsi til að spreyta sig í líf­inu. Þetta sé í sam­ræmi við stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vinstri­flokka og Pírata.

Kl. 20:26 – Fyrsta spurn­ingin er frá Vigdísi Gríms­dóttur rit­höf­undi. Spurt er hve miklu fé fram­bjóð­endur hafi varið til kosn­inga­bar­áttu sinnar. Elísabet Jök­uls­dóttir segir að lík­lega hafi hún fengið um 200 þús­und krónur frá vinum sínum á Facebook. Andri Snær Magnason seg­ist vera með tvo starfs­menn í vinnu. Edda Heiðrún Backman hafi haldið upp­boð til styrktar fram­boð­inu auk þess sem tón­list­ar­menn hafi gefið vinnu sína. Guðrún Margrét seg­ist telja að kostn­að­ur­inn við fram­boð sitt sé innan við milljón. Hluti kostn­að­ar­ins sé vegna Dale Carnegie-nám­skeiðs sem hún sótti. Ástþór Magn­ús­son seg­ist ekki hafa þegið nein fjár­fram­lög og ekki tekið saman hve mikið kosn­inga­bar­átta sín hafi kostað. Guðni segir fram­boð sitt fjár­magnað með frjálsum fram­lögum ein­stak­linga og fyr­ir­tækja í sam­ræmi við lög og reglur þar um. Reynt sé að halda kostn­aði í lág­marki. Hildur Þórð­ar­dóttir fjár­magnar sína kosn­inga­bar­áttu með bóka­sjóði sem hún heldur utan um. Sturla Jónsson segir kosn­inga­bar­áttu sína hafa kostað um 250 þús­und krónur, þar af hafi jakka­fötin kostað 100 þús­und krónur. Halla segir kosn­inga­bar­áttu sína hafa kostað ein­hverjar millj­ónir og hún hafi gengið á sparifé sitt frá því fyrir hrun. 

Kl. 20:18 – Umræð­urnar eru hafnar og allir for­seta­fram­bjóð­endur hafa kynnt sig og sínar áherslur. Nú taka spurn­ingar við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár