Ísland vann England á EM: „Brjálæði - Algert brjálæði“

Íslenska karla­lands­liðið mætir Frökkum í átta liða úrslitum á EM. Dramat­ískar lýs­ingar í enskum fjöl­miðlum: „Íslend­ing­arnir eru í ljósum logum. Þeir spila eins og and­setnir. Eins og nor­ræn fót­bolta­goð.“

Ísland vann England á EM: „Brjálæði - Algert brjálæði“

„Brjálæði. Algert brjál­æði,“ sagði í lýs­ingu breska blaðs­ins The Sun á leik Íslands og Englands þegar Íslend­ingar komust 2 - 1 í Nice eftir að hafa lent 1 - 0 undir á fjórðu mín­útu fyrsta útslátt­ar­leiks Íslands á loka­keppni í knatt­spyrnu karla.

Karla­lands­lið minnstu þjóð­ar­innar í sögu EM bar sig­ur­orð af liði Eng­lend­ingum í 16-liða úrslitum rétt í þessu. Það var raf­mögnuð stemn­ing á Stade de Nice í kvöld og þús­undir Íslend­inga fylgd­ust með lið­inu.

„Við erum bara með trú og vilja sem ekk­ert annað lið hefur“

Varn­ar­mað­ur­inn Ragnar Sig­urðs­son og sókn­ar­mað­ur­inn Kolbeinn Sig­þórs­son skor­uðu mörk Íslands. „Mér er drullu­sama hverjir þeir eru,“ sagði Ragnar í við­tali eftir leik­inn. Auk þess að skora mark átti hann ævin­týra­lega tæk­lingu, sem forð­aði lík­lega jöfn­un­ar­marki Eng­lend­inga, og síðan hjól­hesta­spyrnu sem end­aði næstum með þriðja marki Íslend­inga. „Við erum bara með trú og vilja sem ekk­ert annað lið hefur,“ útskýrði Ragnar. „Við vorum bara óheppnir að vinna ekki stærra.“

 

 

England fer því úr Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu, þremur dögum eftir að hafa kosið um úrsögn sína úr Evr­ópu­sam­band­inu, eftir að hafa verið dæmt úr leik af Íslandi. 

„Aðeins England getur gert þetta. Tekið for­ystu á fjórðu mínutu, ráðið lögum og lofum næstu tíu mín­út­urnar og endað 2 - 1 undir. Á móti Íslandi. Aðeins Ísland,“ segir í lýs­ingu The Sun. „Íslend­ing­arnir eru í ljósum logum. Þeir spila eins og and­setnir. Eins og nor­ræn fót­bolta­goð.“

Ísland og England hafa tví­vegis mæst í vin­áttu­leikjum, fyrst árið 1982 en þá end­aði leik­ur­inn með jafn­tefli eftir að  Arnór Guðjohn­sen skor­aði mark Íslands. Seinni leik­ur­inn fór fram á Englandi árið 2004 og lyktaði  með 6-1 sigri Englands.

Leik­ur­inn í dag er tví­mæla­laust mik­il­væg­asti leikur íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu til þessa. Sigurinn fleytir okkur áfram á EM. Næst á dag­skrá er viður­eign gegn Frökkum í 8-liða úrslitum. Sigri Ísland mætir það Þjóð­verjum eða Ítölum í und­an­úr­slitum.

Daily Mail
Daily Mail

Mirror
Mirror

Bild
Bild Þýska blaðið Bild tengir sig­ur­inn við úrgöngu Englands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

The Sun
The Sun Breska slúð­ur­blaðið fjallar um nið­ur­læg­ingu Breta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár