Illugi telur Guðlaug Þór stýra Vigdísi

Furða sig á orðum Vigdísar Hauks­dóttur á Facebook, sem lýsti því yfir á Útvarpi Sögu að rit­stjóri Kjarnans væri mögu­lega að afvega­leiða les­endur. „Röð af til­hæfu­lausum ásök­unum,“ segir Þórður Snær.

Illugi telur Guðlaug Þór stýra Vigdísi

Orð sem Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, lét falla á Útvarpi Sögu í gær hafa vakið nokkurn kurr í dag. Vigdís gaf í skyn að Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, væri vís­vit­andi að blekkja les­endur í máli Víg­lundar Þor­steins­sonar, fyrrum eig­andi BM Vallár.

Hún taldi að tengsl sam­starfs­manns Þórðar, Magnúsar Hall­dórs­sonar, við fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann Stein­gríms J. Sig­fús­sonar sýni fram á van­hæfi hans til að fjalla um málið. Magnús er bróðir Valdi­mars Hall­dórs­sonar sem var aðstoð­ar­maður Stein­gríms J. Sig­fús­sonar á meðan hann gegndi emb­ætti við­skipta- og atvinnu­vega­ráð­herra.

„Mér hefur tek­ist nokkuð sem engum hefur tek­ist áður! Það er að stýra Vigdísi Hauks­dóttur!“

Taldi Kjarnann verja Steingrím

Magnús birti í gær eft­ir­far­andi til­vitnun í orð Vigdísar á Útvarp Sögu: „Ég veit ekki hvort það hafi áhrif, að aðili sem er með honum þarna á Kjarn­anum, er bróðir fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns Stein­gríms J. Sig­fús­sonar … Þannig að það gætu nú alveg verið þarna ein­hverjar upp­lýs­ingar sem lægu þarna inni skil­uru, sem eru til varnar fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra.

Ég ætla einmitt að spyrja hann að þessu, þegar þar að kemur, þegar hann kemur fyrir nefnd­ina, hvort það hafi haft áhrif á skrif hans.

Síðan var það nátt­úru­lega aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, sem lak upp­lýs­ingum úr ráðu­neyt­inu og var að reyna að afvega­leiða fjöl­miðla, þegar hérna, fyr­ir­gefðu orð­bragðið, þegar póst­ur­inn sem að nefnd­ist tussu­fínt, að afvega­leiða, fjöl­miðla, þetta var nú sá tími sjáðu.“

Hver stýrir Vigdísi?

Illugi Jök­uls­son, rit­höf­undur og fyrrum rit­stjóri, skrif­aði færslu um málið á Facebook-síðu sína í dag þar sem hann upp­lýsir les­endur um leynd­ar­mál úr innsta hring Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Ég hef fengið þær óvæntu upp­lýs­ingar úr innsta hring Fram­sókn­ar­flokks­ins, þar sem menn eru mis­jafn­lega ánægðir með fram­göngu Vigdísar Hauks­dóttur, að flestallar þær furður frá henni komi séu í raun ætt­aðar frá sjálf­stæð­is­mann­inum Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni. Ætli sé eitt­hvað til í því?,“ spyr Illugi.

Guð­laugur Þór var ekki lengi að svara þess­ari kenn­ingu á sinni síðu. „Nú er það stað­fest mér hefur tek­ist nokkuð sem engum hefur tek­ist áður! Það er að stýra Vigdísi Hauks­dóttur! Allir vita að hún myndi aldrei gagn­rýna vinstri­menn nema að því að ég segði henni að gera það,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

„Þetta þykir víst bara í lagi í dag. Að þing­menn geti del­erað tómt rugl um nafn­greint fólk í fjöl­miðlum. Það er hresst.“

„Facepalm“

Vísaði ásökunum á bug
Vísaði ásök­unum á bug Formaður fjár­laga­nefndar gaf til kynna að Þórður Snær, rit­stjóri Kjarnans, léti frétta­flutn­ing stýr­ast af tengslum sam­starfs­manns hans við fyrr­ver­andi aðstoð­ar­mann Stein­gríms.

Þing­mað­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn eru ekki þeir einu sem gant­ast með orð Vigdísar á Facebook. Þórður Snær skrifar fyrr í dag stöðu­færslu þar sem hann furðar sig á orðum Vigdísar. „Maður veit eig­in­lega ekki hvað maður á að segja. Hérna er röð af til­hæfu­lausum ásök­unum sem þing­maður í mik­illi valda­stöðu setur fram án nokk­urs rök­stuðn­ings og dæma. Allt sem haldið er fram er þvæla. En þetta þykir víst bara í lagi í dag. Að þing­menn geti del­erað tómt rugl um nafn­greint fólk í fjöl­miðlum. Það er hresst,“ skrifar Þórður.

Kast­ljós­mað­ur­inn Helgi Seljan lýsir yfir skoðun sinni á mál­inu í athuga­semd við þessa færsla og er ekki að flækja málið. „facepalm (fast),“ skrifar Helgi.

Þórður Snær notar tæki­færið til að sýna fram á hversu fjar­stæðu­kennd kenn­ing for­manns fjár­laga­nefndar sé. „Með því að kommenta ertu að opin­bera að við þekkj­umst Helgi Seljan. Ég sé risa­stórt sam­særi í smíðum um sam­an­tekin ein­elt­is­mátt fjöl­miðla. Þekkir þú nokkur bróðir ein­hvers sem hefur ein­hvern tím­ann verið aðstoð­ar­maður ein­hvers?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár