17 ára stúlka lést af völdum E: „Hún var að prufa þetta í fyrsta skipti“

Stúlkan sem lést aðfara­nótt þriðju­dags veikt­ist um helg­ina. Talið er að hún hafi lát­ist af völdum E töflu. Hún hefur ekki verið í neyslu. Sorg ríkir á Akranesi vegna máls­ins.

17 ára stúlka lést af völdum E: „Hún var að prufa þetta í fyrsta skipti“

„Hún var að prufa þetta í fyrsta skipti,“ segir náinn aðstand­andi sautján ára stúlku frá Akranesi sem lést aðfara­nótt þriðju­dags­ins 2. júní á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Reykja­vík. Stúlkan veikt­ist hast­ar­lega á Akranesi aðfara­nótt sunnu­dags eftir að hafa tekið inn e-töflu, að því talið er.

Fjöl­skylda stúlkunnar telur mik­il­vægt að það komi fram að stúlkan hafi verið að prófa efnin í fyrsta skipti. Í mesta lagi hafi verið um eina og hálfa e-töflu að ræða og þá fannst ekk­ert áfeng­is­magn í blóði. „Oft þarf ekki meira til,“ segir aðstand­andi stúlkunnar í sam­tali við Stundina. „Hún hefur ekki verið í neyslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár