Helsta birtingarmynd hefndarkláms á Íslandi: „Á einhver myndbandið sem var talað um í Kastljósinu?“

Íslend­ingur óskar á vef­síð­unni Chansluts eftir mynd­bandi sem tekið var í leyf­is­leysi og fjallað var um í Kast­ljósi og í Stund­inni. Notendur síð­unnar skipt­ast á nekt­ar­myndum af ungum íslenskum stúlkum. Síðan og not­endur hennar voru rann­sak­aðir af lög­regl­unni árið 2014.

Helsta birtingarmynd hefndarkláms á Íslandi: „Á einhver myndbandið sem var talað um í Kastljósinu?“
„Sorglegt“ Kastljós fjall­aði um mál Júlíu Birg­is­dóttur í des­em­ber. Sama dag og umfjöll­unin birt­ist var óskað eftir mynd­band­inu á net­inu. Mynd: Kristinn Magnússon

Lýst er eftir nekt­ar­mynd­bandi af Júlíu Birigs­dóttur, sem fjallað var um í Kast­ljós­inu og Stund­inni, á vef­síð­unni Chansluts. Vefsíðan hefur verið til rann­sóknar hjá lög­reglu vegna dreif­ingar á klám­myndum af íslenskum stúlkum.

„Á ein­hver mynd­bandið sem var talað um í Kast­ljós­inu?“ spyr stofn­andi þráðs­ins á síð­unni þar sem nekt­ar­myndum af stúlkum allt niður í ferm­ing­ar­aldur er deilt. Þar vísar not­and­inn til umfjöll­unar Kastljós um mál Júlíu Birg­is­dóttur en hún varð fyrir því að maður sem hún átti í sam­bandi við tók upp mynd­band af henni er þau voru saman og deildi því á net­inu. Horft hefur verið á mynd­bandið í hund­ruð þús­unda skipta. Júlía kærði málið til lög­reglu og höfð­aði á sama tíma einka­refsi­mál.

Skjáskot
Skjáskot Þráð­ur­inn var stofn­aður aðeins klukku­stund eftir birt­ingu umfjöll­unar Kast­ljós­ins.

Ítrekað hefur verið fjallað um síð­una Chansluts í fjöl­miðlum und­an­farin ár. Á síð­unni skipt­ast not­endur á nekt­ar­myndum af ungum íslenskum stúlkum. Allir not­endur á síð­unni eru nafn­lausir, líkt og er venja á svoköll­uðum chan-síðum. Segja má að síðan sé helsta birt­ing­ar­mynd hefnd­arkláms á Íslandi, en í fæstum til­vikum eru nekt­ar­mynd­irnar ætl­aðar í almenna dreif­ingu á net­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár