„Hef verið spurð hvað ég hafi verið að pæla“

Fyrsti hefnd­arklám­s­dóm­ur­inn: Fyrr­ver­andi kær­asti Katrínar Lilju Sig­ur­jóns­dóttur birti nekt­ar­myndir af henni á net­inu dag­inn eftir sam­bands­slitin. Hún kærði málið og hann fékk tveggja mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm auk þess sem honum var gert að greiða henni miska­bætur.

„Hef verið spurð hvað ég hafi verið að pæla“
Nes­kaup­staður Katrín Lilja er þakk­lát fyrir að búa í litlu sam­fé­lagi, þar sem hún naut stuðn­ings.

Katrín Lilja Sig­ur­jóns­dóttir er þol­andi hefnd­arkláms. Í febr­úar á síð­asta ári birti fyrr­ver­andi kær­asti hennar fimm nekt­ar­myndir af henni á Facebook-síðu sinni en hann var nýlega dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi vegna máls­ins, auk þess sem honum var gert að greiða henni 250 þús­und krónur í miska­bætur.

Hún var ein­ungis 17 ára þegar brotið var framið, ger­and­inn 18 ára. Katrín Lilja segir frá upp­lifun sinni af hefnd­arklámi, ákvörð­un­inni um að kæra fyrr­ver­andi kærasta sinn og skömminni sem hún seg­ist strax hafa skilað til föð­ur­hús­anna. 

Nærmyndir af bakhluta og kynfærum

„Við vorum búin að vera saman í eitt og hálft ár. Ég sendi honum þessar myndir sjálf nokkru áður en þetta gerð­ist, en ég hélt að hann hefði eytt þeim. Ég var búin að ganga á eftir því í svo­lít­inn tíma og biðja hann um eyða þeim úr tölv­unni sinni. Svo var ég á þorra­blóti með mömmu minni og pabba í febr­úar í fyrra og hafði slökkt á sím­anum mínum því hann var ítrekað að reyna að hringja í mig,“ segir Katrín Lilja en þau höfðu hætt saman deg­inum áður. Að sögn Katrínar hafði pilt­ur­inn tekið sam­bands­slit­unum illa og þá um nótt­ina setti hann mynd­irnar af henni á Facebook. Samkvæmt dóms­skjölum er um að ræða nær­myndir af bak­hluta og kyn­færum Katrínar og fylgdi mynd­unum text­inn: „Takk fyrir ad halda fram­hjá mer sæta“ ásamt fullu nafni Katrínar Lilju. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár