Hanna Birna var ritstjóra MAN magasín dýr

Björk Eiðs­dóttir rit­stjóri MAN seg­ist ekki ætla að birta við­tal við Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur sem átti að vera á for­síðu tíma­rits­ins.

Hanna Birna var ritstjóra MAN magasín dýr
Hanna Birna Krist­jáns­dóttir Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi reynd­ist tíma­rit­inu illa. Mynd: PressPhotos

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, olli nokkrum fjár­hags­legum skaða fyrir tíma­ritið MAN með því að end­ur­segja við­tal sitt við tíma­ritið í Íslandi í dag. Björk Eiðs­dóttir, rit­stjóri MAN, seg­ist í sam­tali við Stundina skilj­an­lega vera svekkt yfir þessu en tíma­ritið eyddi bæði tíma og fé í meðal ann­ars ljós­myndun og stílista. For­síðu­við­talið við Hönnu Birnu verður ekki birt segir Björk. Nútíminn greindi fyrstur frá mál­inu í dag.

„Við vorum búin að vinna við­talið og ganga frá því þegar þetta ger­ist á mánu­dags­kvöldið. Hún sagði allt, fyr­ir­sögn­ina og allt. Hún segir meira að segja fyr­ir­sögn­ina í við­tal­inu. Auðvitað er þetta rosa­lega svekkj­andi,“ segir Björk.

Hún segir að útgáfu tíma­rits­ins muni ekki seinka. Hins vegar hafi þurft að seinka prentun með til­heyr­andi kostn­aði. For­síðu­við­talið átti fyrst og fremst að fjalla um hennar per­sónu­legu upp­lifun af leka­mál­inu öllu. Björk segir að Hanna Birna seg­ist hafa lofað því að fara ekki í annað per­sónu­legt við­tal, en búist var við að hún færi í frétta­við­töl vegna end­ur­komu hennar á Alþingi.

„Það vita það allir að það er ekki hægt að birta sama við­talið tvisvar. Við sleppum við­tal­inu hennar alveg. Þú getur ímyndað hvað það kostar; myndun með stílista, ljós­mynd­ara, sminki og hári, blaða­maður og yfir­lestur. Ég var auð­vitað mjög svekkt, en lofa ekki síðra for­síðu­við­tali í næstu viku,“  segir Björk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár