Hanna Birna verður formaður utanríkismálanefndar: „Síður slegin skjaldborg um konurnar heldur en strákana“

Fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra seg­ist hafa verið kölluð ísdrottn­ing. Hún vill vera konum fyr­ir­mynd sem stendur af sér storma.

Hanna Birna verður formaður utanríkismálanefndar: „Síður slegin skjaldborg um konurnar heldur en strákana“

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill taka að sér for­mennsku í nefnd á þing­inu sem nú er að hefj­ast. Þetta kom fram í við­tali við hana í þætt­inum Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun. „Ég held að konur nálgist stjórn­málin aðeins öðru­vísi en karlar,“ sagði hún í spjalli við Óðin Jónsson, umsjón­ar­mann þátt­ar­ins og fyrr­ver­andi frétta­stjóra RÚV.
 

Uppfært kl. 17:00:
Ljóst er að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir verður for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis. Þetta var sam­þykkt á þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í dag.

 

Hanna Birna sagði af sér emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra þann 21. nóv­em­ber 2014. Mikið hafði gengið á; aðstoð­ar­maður hennar var dæmdur fyrir að leka per­sónu­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­endur til fjöl­miðla, hún var staðin að því að segja Alþingi og fjöl­miðlum ósatt um mála­vöxtu en auk þess hafði DV greint frá afskiptum hennar af lög­reglu­rann­sókn á inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu sem Umboðs­maður Alþingis fjall­aði síðar ítar­lega um í áliti þann 23. jan­úar á þessu ári.

„Skortur á öflugum konum“

„Ég var reyndar að hugsa það á leið­inni hingað, það eru tvö ár síðan allt þetta byrj­aði í kringum þetta mál sem varð þess síðar vald­andi að ég kvaddi þetta aðeins í bili,“ sagði Hanna Birna í við­tal­inu og bætti því við að hún væri hugsi yfir hörkunni í stjórn­málum.

„Það er nú stöð­ugur skortur á öfl­ugum konum sem gefa kost á sér í þennan harða slag, hefur það áhrif á þá ákvörðun þína að halda áfram?“ spurði Óðinn og tók Hanna Birna undir það. Sagði hún að það væri alþjóð­leg stað­reynd að konur færu síður í stjórn­mál en karlar og ent­ust þar skemur. Þessu til vitnis nefndi Hanna Birna að sú kona sem hefði mesta þing­reynslu á Alþingi, Katrín Júl­í­us­dóttir, aðeins nýorðin fer­tug. „Ég vil alla­vega ekki vera þannig kona að ég fari í burtu með skila­boð­unum: þið skulið ekki vera hérna,“ sagði Hanna Birna.

Hefur verið kölluð ísdrottning

„Það er mik­il­vægt að hafa þessa fyr­ir­mynd að konur standi af sér þessa storma eða hvað?“ spurði Óðinn og Hanna Birna jánk­aði því. „Ég hef fengið á mig nöfn í þeim anda að ég sé kaldrifjuð og ég sé ísdrottn­ing, og öll þessi fögru nöfn,“ sagði Hanna Birna. „Konur eiga að vera þátt­tak­endur, ger­endur í stjórn­málum, ekki fórn­ar­lömb og alls ekki eitt­hvað veggskraut.“

„Þú tókst þér tíma í að sleikja sárin
og sýndir þessa kven­legu auð­mýkt“

Óðinn sagði við Hönnu Birnu að hún hefði sýnt „kven­lega auð­mýkt“. „Þú tókst þér tíma í að sleikja sárin og sýndir þessa kven­legu auð­mýkt, fórst í skugg­ann og fórst með veggjum í þing­hús­inu á síð­asta ári,“ sagði hann. Hanna Birna svar­aði: „Ég vil nú ekki meina að ég hafi farið með veggjum. Ég var bara, þetta reynd­ist mér bara erfitt og mjög snúið. Og það að vita ekki í heilt ár er miklu verra en að vita.“

Hér vísar Hanna Birna til brots Gísla Freys Val­dórs­sonar, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns síns, á þagn­ar­skyldu sem mark­aði upp­haf leka­máls­ins svo­nefnda. Gísli veitti Haraldi Johann­es­sen, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins upp­lýs­ingar um hæl­is­leit­end­urna Evelyn Glory Joseph og Tony Omos þann 19. nóv­em­ber en þann 22. nóv­em­ber fund­aði Hanna Birna með rit­stjór­anum í ráð­herra­bíl sínum. Hvorki Hanna Birna né Haraldur vilja gefa upp hvað fram fór á fund­inum. „Ég hef ekk­ert við þig að tala,“ sagði Haraldur þegar Stundin spurði hann um málið í jan­úar, en Hanna Birna hefur ekki svarað fyr­ir­spurn um málið. Hefur hún alltaf haldið því fram að hún hafi ekki vitað af sekt Gísla Freys. Þessu hélt hún til streitu í við­tal­inu við Óðin í morgun.

Síður slegin skjaldborg um konur

Hanna Birna telur að konur taki „hremm­ingum í stjórn­málum“ per­sónu­legar en karlar. „Síðan held ég því miður að það sé þannig – og það er alþjóð­leg stað­reynd – að það er síður slegin skjald­borg um kon­urnar heldur en strák­ana. Það hefur bara að gera með þessa menn­ingu. Það er ein­hver svona hálf­gerð víg­vall­ar­menn­ing í stjórn­málum,“ sagði hún.

Aðspurð hvað tæki við á næsta þingi sagð­ist hún ætla að „mæta af fullri gleði og mjög mik­illi ánægju“. Hún sagð­ist síð­ast hafa farið inn í miklum róleg­heitum. Ég ákvað bara að gefa mér tíma til að anda þessu að mér aftur.“ Nú tæki hins vegar öfl­ugri þátt­taka við. Hún sæk­ist eftir því að verða áfram vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og býst við því að fara með for­mennsku í þing­nefnd á Alþingi. 

Neitaði að svara þingnefnd

Eftir að Umboðs­maður Alþingis skil­aði þing­inu áliti um afskipti Hönnu Birnu af störfum Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, gerði stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd tvær til­raunir til að fá Hönnu Birnu fyrir nefnd­ina til að svara spurn­ingum um leka­málið og fram­göngu sína gagn­vart þing­heimi. Hanna Birna afþakk­aði fund­ar­boðið.

Um svipað leyti var greint frá því í fjöl­miðlum að í ráð­herra­tíð Hönnu Birnu hefði inn­an­rík­is­ráðu­neytið í greitt mark­aðs­stof­unni Argus ehf. 2,4 millj­ónir króna vegna ráð­gjafar í tengslum við leka­málið. Hjálpaði fyr­ir­tækið ráð­herr­anum að bæta ímynd sína í fjöl­miðlum. Lög­fræði­ráð­gjöfin sem fyrr­ver­andi ráð­herra fékk var einnig kostuð af skatt­greið­endum, en lög­manns­stofan LEX fékk rúm­lega eina milljón króna fyrir þjón­ustu sína. Alls nam beinn kostn­aður ráðu­neyt­is­ins vegna aðkeyptrar ráð­gjafar vegna leka­máls­ins tæpum 3,5 millj­ónum króna.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár