„Hann var að fara að fá sér köku, virðulegi forseti“

Svandís Svav­ars­dóttir segir for­sæt­is­ráð­herra hafa yfir­gefið þing­sal til þess að fá sér köku. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar segja Sigmund Davíð sýna sam­starfs­fólki sínu óvirð­ingu.

„Hann var að fara að fá sér köku, virðulegi forseti“

„Virðu­legi for­seti, var hann að fara til þess að fara á fund? Var hann að fara að tala við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn eða Sam­ein­uðu þjóð­irnar eða hvað? Hann var að fara að fá sér köku, virðu­legi for­seti. Ég verð bara að segja það að mér finnst þetta með algjörum ólík­indum. Ég spyr for­seta hvort þetta geti talist til sóma í þing­inu?“

Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, á Alþingi í dag. Sig­mundur Davíð mun hafa yfir­gefið þingsal­inn á meðan Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, beindi til hans fyr­ir­spurn um vernd afhjúpenda.  Nokkrir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar tóku í kjöl­farið til máls þar sem þeir sök­uðu for­sæt­is­ráð­herra um að sýna sam­þing­mönnum sínum óvirð­ingu. Kjarninn sagði fyrst frá mál­inu. 

 „Virðu­legi for­seti, við þekkjum auð­vitað þennan hæst­virta for­sæt­is­ráð­herra sem verið hefur um skamma hríð að því að sýna hér ítrekað ótrú­lega óvirð­inu gagn­vart sam­starfs­fólki sínu í þing­inu og fyrir það að skor­ast undan því mán­uðum og miss­erum saman að ræða við þing­menn efni sem þeir óska eftir því að fá að ræða við hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra.

Nú þegar for­sæt­is­ráð­herra fæst til þess að koma og svara fyr­ir­spurn þá getur hann ekki einu sinni séð sóma sinn í því að ljúka umræð­unni og hlusta á síð­ara inn­leggið frá þeim sem spyr hann,“ sagði Helgi Hjörvar, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og skor­aði á for­seta Alþingis að taka þessa lít­ils­virð­ingu for­sæt­is­ráð­herra gagn­vart þing­inu og gagn­vart sam­starfs­mönnum sínum á Alþingi til greina. 

„Þetta er stans­laust og linnu­laust. Þetta er óþol­andi og þetta er Alþingi til mik­ils ósóma.“

„Virðu­legi for­seti, ég hélt að ég væri end­an­lega hættur að verða hissa á nokk­urs konar lít­ils­virð­ingu hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra gagn­vart þing­inu en í þetta sinn varð ég pínu­lítið hissa. Þetta er óvenju­leg teg­und af henni.

Hins vegar verð ég að við­ur­kenna, virðu­legur for­seti, að ég er orð­inn svo­lítið þreyttur á því að þurfa að koma hingað og lýsa því að ég sé ekki hissa yfir því hvernig for­sæt­is­ráð­herra komi fram við þingið. Það er full­kom­lega mann­legt að gera mis­tök, kannski af og til, og þá útskýra þau eða eitt­hvað því um líkt. En þetta er skýrt mynstur,“ sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, um málið. „Þetta er stans­laust og linnu­laust. Þetta er óþol­andi og þetta er Alþingi til mik­ils ósóma,“ sagði hann. 

„Það nær sífellt nýjum hæðum, hrok­inn og yfir­lætið sem for­sæt­is­ráð­herra þessa lands sýnir okkur sam­starfs­fólki sínu,“ sagði Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. „Málið sem hér var rætt var lagt fram 13. nóv­em­ber á síð­asta ári og nú sá for­sæt­is­ráð­herra sér fært að mæta hingað í þing­sal og ræða við for­mann Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs en hann hafði aug­ljós­lega ekki tæki­færi eða tíma til að ljúka þeirri umræðu vegna þess að hann var hér frammi að fá sér kaffi og köku.

Hvert telur hann að hlut­verk sitt sé sem ráð­herra í rík­is­stjórn? Er það ekki að eiga hér sam­skipti við þing­menn? Eða er það eitt­hvað allt annað?

Hér er talað um sam­skipta­örð­ug­leika, óvirð­ingu og ýmis­legt fleira sem manni dettur í hug. Það er alveg óhætt að segja það að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra leggur ekk­ert að mörkum til þess að liðka fyrir þing­störfum, svo mikið er víst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár