„Hann laug sig til valda og mun reyna það að nýju“

Átök Pírata og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar harðna. Birgitta Jóns­dóttir seg­ist skamm­ast sín fyrir for­sæt­is­ráð­herra og telur dag­ana þar til hann hættir.

Forsætisráðherrann
For­sæt­is­ráð­herr­ann Stofn­andi Pírata segir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi logið sig til valda og kveðst telja dag­ana þar til hann hverfi frá völdum. For­sæt­is­rá­herr­ann lýsir hug­myndum Pírata um borg­ara­laun sem rugli. Mynd: Wikipedia

„Ég hrein­lega skamm­ast mín fyrir for­sæt­is­ráð­herra Íslands og veit að ég er ekki ein um að telja dag­ana uns þetta fólk hverfur frá völdum. En hann laug sig til valda og mun reyna að gera slíkt hið sama að nýju,“ skrifar Birgitta Jóns­dóttir, einn stofn­anda Pírata, í færslu á Facebook vegna ummæla Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um borg­ara­laun og Pírata.

For­sæt­is­ráð­herra lýsti borg­ara­laun­unum sem stefnu­máli Pírata og taldi vera algjört rugl að ætla að koma á slíku fyr­ir­komu­lagi. Þá sagði hann að Píratar hefðu engin stefnu­mál og gagn­rýndi Birgittu Jóns­dóttur meðal ann­ars á þingi fyrir að lesa upp úr grein af vef­miðl­inum Kjarn­anum.

Birgitta er harð­orð í færslu sinni. Með ummælum sínum um lygar Fram­sókn­ar­flokks­ins er Birgitta að vísa til lof­orða um afnám verð­trygg­ingar. Aðstoð­ar­menn for­sæt­is­ráð­herra fá á bauk­inn líkt og Sig­mundur Davíð fyrir að veit­ast að Pírötum sem fara með him­in­skautum í skoð­ana­könn­unum á sama tíma og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað stærstum hluta fylgis síns.  

„Það er ljóst að for­sæt­is­ráð­herra og aðstoð­ar­maður hans (einn af sjö) Jóhannes útskýr­ari geta ekki fundið neinn alvöru högg­stað á Pírötum og geta því ekki gert neitt annað en þeim er tamt: að búa til lyga og ýkju­sögu: flökku­sögu um eitt­hvað stór­kost­lega hættu­legt eins og þá stór­kost­lega hættu­legu vá sem hlýtur að fel­ast í því að við Píratar leyfum okkur að kanna hvort að for­sendur séu til að móta stefnu um borg­ara­laun: skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu á upp­lýstum grunni,“ skrifar Birgitta og rifjar upp ummæli for­sæt­is­ráð­herra um hættu af útlendu kjöti.

„Þetta minnir um margt á ótta við veiru­sýk­ingar sem þessi sami for­sæt­is­ráð­herra hélt fram að ber­ast í heila manna úr útlenskum mat: Evr­ópu­kjöt,“ skrifar Birgitta. Þar vísar hún til orða Sig­mundar Davíðs um að sníkju­dýrið toxoplasma, sem getur fund­ist í kjöti, sem hann sagði að gæti „breytt hegðun heilu þjóð­anna“.

Ekki náð­ist í for­sæt­is­ráð­herra eða Jóhannes Þór Skúlason, einn aðstoð­ar­manna hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár