Ingvar beið refsingar og nauðgaði aftur - Hæstiréttur mildar dóminn

Ingvar Dór Birg­is­son var 29 ára þegar hann kúg­aði 14 ára stúlku til sam­ræðis með nekt­ar­myndum sem hann hafði sann­fært hana um að senda sér. Hann hafði þá þegar verið dæmdur fyrir aðra nauðgun. Hæsti­réttur mild­aði dóm hérð­asdóms í gær.

Ingvar beið refsingar og nauðgaði aftur - Hæstiréttur mildar dóminn
Mildaði dóm­inn Hæsti­réttur mild­aði dóm hér­aðs­dóms um eitt ár. Mynd: Fasteignir ríkissjóðs

Hæsti­réttur mild­aði í gær dóm hér­aðs­dóms yfir Ingvari Dór Birg­is­syni niður í eitt og hálft ár, en hann var dæmdur fyrir að nauðga 14 ára stúlku árið 2014.

Hér­aðs­dómur hafði áður dæmt hann í fang­elsi í tvö og hálft ár. Brotið framdi hann á meðan hann beið dóms Hæsta­réttar fyrir annað kyn­ferð­is­brot gegn annarri 14 ára stúlku, sem hér­aðs­dómur hafði fundið hann sekan um, en það brot framdi hann árið 2010. Fyrir það var hann síðar dæmdur í fang­elsi í þrjú og hálft ár.

Nýtti sér yfirburðarstöðu sína gagnvart stúlkunni

Í dómnum er brotið sagt bæði alvar­legt og ófyr­ir­leitið. Ingvar hafi fengið stúlk­una, sem þá var 14 ára gömul, til að koma og hitta hann á heim­ili sínu, meðal ann­ars með því að segja henni að svo lengi sem hún kæmi og hitti hann myndi hann ekki birta myndir af henni á net­inu sem sýndu lík­ama hennar að hluta. Hann hafi nýtt sér yfir­burð­ar­stöðu sína gagn­vart stúlkunni vegna ald­urs-, þroska- og afls­munar, nauðgað henni, haldið henni niðri í rúm­inu þegar hún reyndi að fara í burtu og í fram­hald­inu látið stúlk­una hafa við sig munnmmök. 

Ingvar Dór Birgisson
Ingvar Dór Birg­is­son Hefur verið til umræðu í hópum á Facebook vegna fjölda til­rauna hans til að setja sig í sam­band við ung­lings­stúlkur.

Í skýrslu stúlkunnar hjá lög­reglu greindi hún frá sam­skiptum við Ingvar á net­inu í gegnum Skype, Facebook, Snapchat og í síma. Hafi sam­töl þeirra verið af kyn­ferð­is­legum toga sem hafi þró­ast þannig að hann hafi þrýst á hana að senda sér „flass­myndir“, það er myndir sem sýni nekt. Hann hafi líka sent henni myndir, meðal ann­ars af kyn­færum. Þá hafi hann þrýst á hana um að hitta sig á dval­ar­stað hans og kvaðst myndu setja mynd­irnar af henni á netið að öðrum kosti. Hafi hann áður en að því kom lýst því í sam­töl­unum hvaða kyn­ferð­is­legu athafnir hann hugð­ist fram­kvæma með henni en stúlkan greindi honum frá því að hún hefði ekki haft sam­ræði áður. Stúlkan sagði Ingvar hafa vitað að hún var 14 ára á þessum tíma, en hann hafi verið 29 ára.

Stúlkan mun hafa sagt vin­konu sinni frá því sem gerð­ist, en hún hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrr en hún fór að ræða við hana að um nauðgun hafi verið að ræða. Vinkonan hvatti stúlk­una til að segja frá og í kjöl­farið leit­aði stúlkan til lög­reglu ásamt móður sinni. 

Neitaði alfarið sök

Ingvar neit­aði því alfarið við fyrstu yfir­heyrslu að hafa haft sam­ræði við stúlk­una og sagð­ist ekki muna eftir því að hafa verið í sam­skiptum við hana í gegnum Skype eða síma. Hann sagð­ist aðeins hafa hitt hana í eitt skipti, á stræt­is­vagna­stoppi­stöð í Hamra­borg. Gögn máls­ins sýna hins vegar fram á annað. Sam­skipti Ingvars við stúlk­una hafi náð yfir langt tíma­bil og verið svo til öll á kyn­ferð­is­legum nótum. 

Í einu spjalli kemur fram að þau muni hitt­ast næsta dag. Þá spyr stúlkan nánar hvað hann vilji gera. Ingvar svarar: „setja eh kósý mynd á sem þú færð að velja, spjalla, kúra, kyssa og svo það ger­ist sem ger­ist.“ Kvaðst hún vilja það sama. Þá segir Ingvar að ef henni finn­ist óþægi­legt það sem gert verði þá lofi hann að stoppa. Stúlkan biður Ingvar þá sér­stak­lega um að gera ekki eitt­hvað sem hún vilji ekki. Svarar hann því til að hún verði að vera jákvæð, ef eitt­hvað ger­ist þá eigi hún að leyfa því að ger­ast en ekk­ert slæmt geti gerst. 

„Sam­skipti þessi bera glöggt með sér að full­orð­inn maður talar við reynslu­litla ung­lings­stúlku. Hið kyn­ferð­is­lega tal er ein­hliða af hans hálfu og hann stýrir því alfarið,“ segir í nið­ur­stöðu dóms­ins. Hann muni hafa þrýst á stúlk­una með vax­andi þunga og að til­gang­ur­inn hafi verið að sann­færa hana um að hún eigi að koma og eiga sín fyrstu kyn­ferð­is­mök með honum. Ljóst sé að stúlkan upp­lifi þessa athygli fyrst á jákvæðan hátt, en sé þó óör­ugg og nokkuð á varð­bergi. Þegar Ingvar verði ágeng­ari og gróf­ari fari stúlkan undan í flæm­ingi, en hann láti þá óánægju sína í ljós og bendi henni ítrekað á að hann hafi í fórum sínum nekt­ar­myndir af henni sem fari ekki á netið svo lengi sem hún hitti hann.

Flúði land í báðum tilvikum

Þegar þing­festa átti fyrra málið gegn Ingvari kom í ljós að hann væri far­inn úr landi og kom­inn til Cayman-eyja. Hann lét dóm­inn vita að hann væri ekki á leið til lands­ins í bráð og til stóð að gefa út hand­töku­skipun á hendur honum. Til þess kom þó ekki. 

Við yfir­heyrslur yfir Ingvari í síð­ara mál­inu kom fram að hann væri á leið úr landi og stóð þá til að fara fram á far­bann gegn honum. Hann náði hins vegar að flýja land og fara til Hollands, en sama dag var gefin út hand­töku­skipan á hendur honum. Ingvar var því hand­tek­inn við kom­una til Amster­dam og fram­seldur aftur til Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár