Grafið undan starfsgetu Fiskistofu

Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði Alþingi skýrslu um flutn­ing rík­is­starf­semi milli lands­hluta. Um flutn­ing Fiski­stofu segir að „litlum tíma hafi verið varið til und­ir­bún­ings sem var að ýmsu leyti ábóta­vant“.

Grafið undan starfsgetu Fiskistofu

Skýr mark­mið um bætta þjón­ustu, aukna skil­virkni, hag­kvæmni og mæl­an­legan árangur ættu að vera ófrá­víkj­an­leg skil­yrði þegar hugað er að flutn­ingi rík­is­stofn­ana. Óásætt­an­legt er að líta aðeins til dreif­ingar opin­berra starfa. 

Þetta er mat Rík­is­end­ur­skoð­unar að því er fram kemur í skýrslu sem hún skil­aði Alþingi í dag. Þar er fjallað um ákvarð­ana­töku, und­ir­bún­ing og fram­kvæmd flutn­inga fimm rík­is­stofn­ana á milli lands­hluta á árunum 1999-2007 en jafn­framt vikið stutt­lega að flutn­ingi Fiski­stofu á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. 

Í kafl­anum um flutn­ing Fiski­stofu er vísað til álits umboðs­manns Alþingis um málið og dregin sú ályktun „að litlum tíma hafi verið varið til und­ir­bún­ings sem var að ýmsu leyti ábóta­vant“. Bent er á að umboðs­maður Alþingis hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að upp­lýs­inga­gjöf sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra til starfs­manna Fiski­stofu um fyr­ir­hug­aðan flutn­ing höf­uð­stöðv­anna hefði ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár