Getum aðstoðað tífalt fleiri ef fjármagnið yrði notað erlendis

„Það hefur ekk­ert upp á sig á flytja flótta­manna­búðir til Íslands,“ segir Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Rík­is­stjórnin gagn­rýnd fyrir seina­gang í mál­efnum flótta­manna. Utan­rík­is­ráð­herra segir nefnd skila af sér „ekki innan langs tíma“.

Getum aðstoðað tífalt fleiri ef fjármagnið yrði notað erlendis

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og full­trúi í vel­ferð­ar­nefnd, sagði í við­tali á Bylgj­unni í morgun að mik­il­vægt væri að velta fyrir sér hvernig því fjár­magni, sem Íslend­ingar muni setja í aðstoð til flótta­manna, sé best varið. „Við þurfum að gera þetta þannig að við hugsum vel um þetta fólk. Það hefur ekk­ert upp á sig á flytja flótta­manna­búðir til Íslands. Við þurfum auð­vitað að koma þessu fólki fyrir á heim­ilum og und­ir­búa það fyrir lífið og taka þátt í líf­inu á íslenska vísu. Það kostar fullt af pen­ingum,“ sagði hann meðal ann­ars.

„Það kostar fullt af pen­ingum“

„Mér er sagt að það væri jafn­vel hægt að tífalda þann fjölda sem við getum aðstoðað ef fjár­magnið yrði notað erlendis. Ég er að segja þetta án þess að ég hafi fullt vit á því. En það er mjög mik­il­vægt fyrir okkur, einmitt í þess­ari stöðu þegar við erum fús að hjálpa, að gera okkur grein fyrir því hvar pen­ing­arnir koma sér best. Hvar verður mest úr þeim,“ segir Ásmundur.

Forsætisráðherra talar um tilfærslu framlaga

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tal­aði á svip­uðum nótum að loknum fyrsta fundi ráð­herra­nefndar um mál­efni flótta­fólks og inn­flytj­enda í byrjun mán­aðar. Á fund­inum var ekki tekin ákvörðun um hve margir flótta­menn fá hæli á íslandi á þessu ári, en Sig­mundur Davíð sagði hins vegar brýnt að huga að flótta­mönnum utan Evrópu.

„Þetta er það stórt verk­efni að við munum aldrei geta sagt að við séum búin að setja nóg í mála­flokk­inn. En ég sé fyrir mér að við munum auka veru­lega fram­lög okkar til þessa mála­flokks með nýjum fram­lögum, hugs­an­lega með ein­hverri til­færslu fram­laga og einnig í gegnum sam­starf okkar við önnur lönd til dæmis í EFTA þar sem liggur fyrir til­laga um að nýta þró­un­ar­sjóð EFTA í auknum mæli til þess að aðstoða við þetta vanda­mál,“ segir Sig­mundur Davíð.

Ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir seinagang

Tæpar tvær vikur eru síðan ráð­herra­nefnd um mál­efni flótta­fólks og inn­flytj­enda kom fyrst saman og enn hafa engar aðgerðir verið kynntar. Rík­is­stjórnin hefur verið gagn­rýnd fyrir að draga lapp­irnar í mál­inu og að félags­mála­ráð­herra gefi óljós svör um hvað skuli gert. 

Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sagði í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar í síð­ustu viku að „innan skamms“ myndi rík­is­stjórnin greina frá aðgerðum til að bregð­ast við flótta­manna­vand­anum í Evrópu og hvernig Ísland geti lagt sitt að mörkum. Þá sagði Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra í við­tali við Stöð 2 í gær­kvöldi að aðgerð­irnar verði kynntar á næstu dögum eða „ekki innan langs tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár