Frambjóðandi talar vel um pólitíska mótherja: „Lýðræðisins fínasta stund“

Pawel Bartoszek, fram­bjóð­andi Við­reisnar, tekur að sér að hrósa póli­tískum mótherjum sínum. Fram­kvæmda­stjóri Pírata segir þá vilja ein­beita sér að því að bæta sjálfa sig frekar en gagn­rýna aðra.

Frambjóðandi talar vel um pólitíska mótherja: „Lýðræðisins fínasta stund“
Pawel Bartoszek Fram­bjóð­andi Við­reisnar slær nýjan tón í kosn­inga­bar­átt­una. Mynd: Youtube

Pawel Bortoszek, stærð­fræð­ingur og fram­bjóð­andi Við­reisnar, segir Pírata eiga skilið að hafa fengið auk­inn stuðn­ing og þakkar fyrir að þeir hafi vakið áhuga fólks á stjórn­málum. 

Pawel hrós­aði Pírötum með­vitað í fram­lagi sínu til breyttrar póli­tískrar umræðu. Venjan í stjórn­mála­um­ræðu er að and­stæð­ingar gagn­rýni hver annan í til­raun til að auka fylgi við eigin flokka og draga úr fylgi ann­arra. Fram­kvæmda­stjóri Pírata sagði í við­tali í morgun að flokkur þeirra vildi síður ein­beita sér að því að gagn­rýna aðra.

Í færslu sinni á Facebook segir Pawel, undir titl­inum „Talað vel um póli­tíska mótherja: PÍRATAR“: „Það sem ég er þakk­látur Pírötum fyrir er að hafa vakið upp áhuga á stjórn­málum. Hvort sem það er á Pírata­spjall­inu eða öðrum síðum þeirra tengdum þá erum við með slatta af fólki, oft fólki undir fer­tugu, að tala af krafti um stjórn­mál og stefnur. Ég hef trú á því að það eitt sé gott. Það vald­eflir fólk. Það gefur fólki trú á að það geti breytt hlutum án ofbeldis. Upp­gangur Pírata í könn­unum eru verð­laun fyrir fram­lag þeirra til póli­tískrar umræðu í land­inu. Á ein­hvern hátt er þetta lýð­ræð­is­ins fín­asta stund.“

„Viljum ekki benda á það sem aðrir séu að gera slæmt“

Sigríður Bylgja Sig­ur­jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pírata, sagði í Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun að píratar vildu breyta stjórn­mála­um­ræðu með þeim hætti að benda síður á það sem aðrir gera slæmt og meira að upp­byggi­legri umræðu.

Sigríður BylgjaFram­kvæmda­stjóri Pírata segir að flokk­ur­inn vilji fremur ein­beita sér að því hvað hann geti gert betur en hvað aðrir geri slæmt.

„Við viljum fara okkar leiðir, ekki benda á hvað aðrir séu að gera slæmt. Það er ekki mjög upp­byggj­andi. Heldur ætlum við að ein­beita okkur að því hvernig við getum gert hlut­ina öðru­vísi. Hvað okkur langar til að bæta, styrkja okkur. Það ger­ist ekki neitt nema að þú sinnir sjálfum þér, leggir rækt við sjálfan þig – og þá sjálfan þig sem stjórn­mála­flokk. Rækta upp það góða og hvernig þú vilt vera, setja þér ákveðna fram­tíð­ar­sýn. Þú hefur ekki orku eða úthald í það ef þú ert alltaf að pota í ein­hverja aðra og ein­blína á hvað er að hjá þeim.“

Sigríður Bylgja sagði til­gang Pírata ekki vera að ná völdum heldur fram­kalla breyt­ingar. „Það sem Píratar hafa er fólk með hjarta og ein­lægni – sem vill breyta íslensku stjórn­mála­kerfi. Það þurfa að eiga sér stað rót­tækar breyt­ingar á sam­fé­lagi okkar.“

Gagnrýndir fyrir óvægna umræðu

Píratar hafa hins vegar verið gagn­rýndir fyrir óvægna umræðu á Pírata­spjall­inu á Facebook, en spjallið er opið. Meðal þeirra eru Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem meðal ann­ars var upp­nefndur „fat bast­ard“ í umræðum á Pírata­spjall­inu.

Össur Skarp­héð­ins­sonKallaður „tröll“ og „fat bast­ard“ á opnu spjalli Pírata á Facebook.

„Á minna en einum sól­ar­hring hef ég verið kall­aður „tröll,“ sömu­leiðis „fat bast­ard“ og líka „þjófur“ á opin­berri síðu Pírata. Þetta er svona tækni­lega þöggun þar sem ofbeldi er beitt til að hrekja frá þá sem hafa óæski­legar skoð­anir. Þetta er sem­sagt hreyf­ingin sem ætl­aði að inn­leiða ný vinnu­brögð. – Ja, mik­ill er and­skot­inn, sagði kell­ingin og sló á lær,“ skrif­aði Össur á Facebook-síðu sína í ágúst.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, svar­aði Össuri því til að frelsi umræð­unnar krefð­ist stjórn­leysis og hefði í för með sér ókurt­eisi. „Þetta er vissu­lega spjall­veggur sem Píratar settu upp og vilja hafa sem frjálsastan, en við getum aug­ljós­lega ekki borið ábyrgð á ókurt­eisi ann­arra. Það er nú bara þannig í líf­inu að maður stjórnar ekki öllu, og ég hrein­lega skil ekki alveg hvernig við eigum að geta haldið opið spjall, sem er opið öllum og á sama tíma bannað ókurt­eisi og dólgs­hátt. Opið spjall sem allir geta tekið þátt í ein­fald­lega krefst ákveð­ins stjórn­leysis.“

Samkvæmt síð­asta Þjóð­ar­púlsi Gallups mæl­ast Píratar með 26% fylgi, eða jafn­mikið og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. 11% styðja Viðreisn en 8% Sam­fylk­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár