Forsetinn sendir foreldrum Birnu samúðarkveður

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sendi for­eldrum Birnu Brjáns­dóttur sam­úð­ar­kveður í dag. Áhöfn Polar Nanoq hefur sömu­leiðis sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fjöl­skyldu Birnu er vottuð samúð.

Forsetinn sendir foreldrum Birnu samúðarkveður
Guðni Th. Jóhann­es­son sendi for­eldrum Birnu Brjáns­dóttur inni­legar sam­úð­ar­kveðjur í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sendi for­eldrum Birnu Brjáns­dóttur inni­legar sam­úð­ar­kveðjur í dag. „Orð fá ekki linað hina miklu sorg en minn­ingin um Birnu, þessa ungu og björtu stúlku, sem var tekin frá okkur í blóma lífs­ins, mun ætíð lifa með íslenskri þjóð,“ segir í til­kynn­ingu frá for­set­anum. Þá notar hann tæki­færið og kemur um leið á fram­færi þökkum til björg­un­ar­sveit­ar­fólks, lög­reglu og ann­arra sem leit­uðu að Birnu og rann­sök­uðu hvarf hennar. „Í sam­stöðu og ein­hug eigum við Íslend­ingar mik­inn styrk,“ segir Guðni. 

Birna Brjánsdóttir
Birna Brjáns­dóttir fannst látin í gær. Hennar hafði þá verið saknað í rúma viku. Tveir skip­verjar af græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq sitja í gæslu­varð­haldi grun­aðir um að hafa ráðið Birnu bana.

Áhöfn Polar Nanoq sendir samúðarkveðju

Áhöfnin á græn­lenska tog­ar­anum Polar Nanoq sendu einnig frá sér yfir­lýs­ingu í dag þar sem skip­verjar sendir fjöl­skyldu Birnu inni­legar sam­úð­ar­kveðjur. Þeir segja að atburð­ur­inn sorg­legi hafi snortið sig djúpt og að þeir vori að hægt verði að upp­lýsa um atburð­ar­rás­ina sem fyrst, svo hægt verði að sækja saka­menn til saka. „Við skip­verjar höfum orðið fyrir miklu áfalli sökum atburða síð­ustu daga. Það hefur verið erfitt fyrir okkur að gera okkur grein fyrir því hvernig við eigum að bregð­ast við ýmsu. Til dæmis hefur fjöl­skylda Birnu beðið okkur um að útskýra hvarf Birnu, en okkur hefur verið bannað að eiga sam­skipti út á við, auk þess sem við höfum ekki vitað, hvað hefur skeð. Við erum þakk­látir fyrir að hafa getað hlúð að hverjum öðrum og fyrir stuðn­ing fjöl­skyldu okkar og vinnu­veit­enda.

Við áhöfn skips­ins, sem nú höfum safn­ast saman í einum bæ á Íslandi, komum beint um borð í skipið við kom­una til Íslands laug­ar­dag­inn 14. jan­úar. Það er mik­il­vægt fyrir okkur að taka fram, að við erum staddir á Íslandi vinn­unnar okkar vegna.

„Það hefur verið erfitt fyrir okkur að vera hluti af þessum hræði­legum atburðum, og sumir okkar hafa þurft að fara heim.“

Margar hugs­anir hafa farið um hug­ann, og það er mik­il­vægt fyrir okkur að segja, að um er að ræða einn til tvo ein­stak­linga, sem grun­aðir eru um að hafa framið verkn­að­inn, og við og þjóð okkar getum ekki tekið ábyrgð á svo voveif­legum atburðum. Þeim verður erfitt að gleyma.

Það hefur verið erfitt fyrir okkur að vera hluti af þessum hræði­legum atburðum, og sumir okkar hafa þurft að fara heim. Við erum mjög þakk­látir fyrir að hafa fengið aðhlynn­ingu frá sál­fræð­ingi og frá sjálf­boða­liðum, og við von­umst til að geta snúið aftur til vinnu okkar og dag­legs lífs.

Á þessum sorg­legum og erf­iðum tímum viljum við taka fram, að við­mót Íslend­inga til okkar hefur ekki breyst og er hlýtt sem fyrr,“ segir í yfir­lýs­ingu skip­verja á Polar Nanoq.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár