Forseti aldrei hafnað tillögu forsætisráðherra um þingrof

Pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti segir for­seta hafa stigið með afger­andi hætti inn á póli­tískan vett­vang í dag með því að hafna til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof. Hann hafi tekið að sér að verða „gæslu­maður rík­is­stjórn­ar­innar“.

Forseti aldrei hafnað tillögu forsætisráðherra um þingrof

Björg Thoraren­sen, pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti, segir Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, hafa tekið sér það hlut­verk að vera „gæslu­maður rík­is­stjórn­ar­innar“ með því að passa upp á að vilji meiri­hluta þings­ins liggi fyrir áður en hann sam­þykkir beiðni for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof. „Mér sýn­ist svo að for­seti taki sér það hlut­verk að gæta hags­muna meiri­hluta þings­ins vegna þess að hann telur að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki stuðn­ing á bak­við þessa til­lögu um þing­rof, eins og hann bera hana fram. Það er í meira lagi óvenju­legt og ég held það hæfi ekki almenni­lega að vísa til sög­unnar í þessu sam­bandi vegna þess að, eins og ég hef nefnt hér fyrr, þá er búið að breyta stjórn­skipan okkar þannig að þingið sjálft getur tek­ist á við afleið­ingar þess ef for­sæt­is­ráð­herra gengur fram gegn vilja meiri­hluta þings­ins. Þannig að þótt að þing yrði rofið þá myndi þingið sitja áfram og takast á við póli­tískar afleið­ingar af þess­ari mjög svo óvenju­legu til­lögu sem kemur fram hjá for­sæt­is­ráð­herra,“ sagði Björg í við­tali við RÚV í hádeg­inu. 

Hún sagði jafn­fram að for­seti hafi með þessu stigið með mjög afger­andi hætti inn á póli­tískan vett­vang. „Ég þekki ekki dæmi þess að for­seti hafi form­lega og með rök­studdri afstöðu hafnað til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um þing­rof,“ segir Björg. 

Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur sagði jafn­framt að Ólafur Ragnar hafi tekið rétta ákvörðun með því að hafna beiðni Sig­mundar Davíðs, því hann hafi ekki vitað hug Bjarna Bene­dikts­sonar í mál­inu. „Mér finnst ill­skilj­an­legt, miðað við þær upp­lýs­ingar sem við höfum, að Sig­mundur hafi tekið þessa miklu áhættu að segj­ast á Facebook fyrir framan alþjóð að hann sé að fara til Bessa­staða að rjúfa þing, eins og hann segir það, og ætl­ast svo til þess að Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti til tutt­ugu ára, muni segja já og amen.“      

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár