Flutti í tjald eftir að íslenski draumurinn brast

Hol­lenski vís­inda­mað­ur­inn Johan Hendriks flutti til Íslands til að hefja nýtt líf, en end­aði búsettur á tjald­stæð­inu í Laug­ar­dal eftir að hafa hrökkl­ast af leigu­mark­að­inum. Nú eru horf­urnar hins vegar bjart­ari fyrir Johan.

Johan rennir niður tjald­inu. Það er kalt úti og hefur rignt mikið síð­ustu daga, þannig að hann kveikir á prímusnum sínum í nokkrar mín­útur, fer úr blautum föt­unum og skríður skjálf­andi í svefn­poka sinn. Johan er reyndur úti­vist­ar­maður og hefur gist úti um allt í tjaldi sínu, meðal ann­ars í -28° frosti í Chamonix í Frakk­landi. Tjald hans og svefn­poki eru gerð fyrir leið­angra í Himalaya-fjöll­unum, en Johan er ekki hér í slíkri ferð; hann hefur ein­fald­lega ekki efni á því að leigja lengur í borg­inni, og eftir nokkrar vikur í far­fugla­heim­ilum hefur sparifé hans minnkað til muna.

Þetta er annað kvöld hans á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal og núna er hann hræddur um að eiga ekki fyrir því og að þurfa að færa tjaldið sitt út fyrir borg­ar­mörk. Hann slekkur á prímusnum og sofnar stuttu síðar. Á morgun tekur við nýr dagur í nýrri vinnu.

Ég sit með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár