Fékk „sjokk“ í Hegningarhúsinu og finnur til með kvenfanganum

Dóttir Rósu Jóns­dóttur verður færð á föstu­dag úr Hegn­ing­ar­hús­inu til Akur­eyrar. Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist hafa fengið sjokk þegar hún heim­sótti fang­elsið á síð­asta kjör­tíma­bili.

Fékk „sjokk“ í Hegningarhúsinu og finnur til með kvenfanganum
Borg­ar­full­trúi Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, seg­ist hafa fengið í hjartað við að hugsa til fang­ans. Mynd: Samsett

Dóttir Rósu Jóns­dóttur, sem færð var í ein­angr­un­ar­klefa í Hegn­ing­ar­hús­inu eftir lokun Kvenna­fang­els­is­ins, verður flutt í Fang­elsið á Akureyri á föstu­dag­inn.

Stundin ræddi við Rósu í gær þar sem hún lýsti slæmum aðbún­aði dóttur sinnar í Hegn­ing­ar­hús­inu en hún var færð þangað eftir lokun Kópa­vogs­fang­elsis, öðru nafni Kvenna­fang­elsið, vegna nið­ur­skurðar.

„Hún vill vera innan um fólk. Enda er hún ekki morð­ingi eða barn­a­níð­ingur“

Rósa segir í dag að dóttir sín sé gíf­ur­lega ánægð með að kom­ast úr ein­angrun á næstu dögum. Rósa seg­ist hafa hætt við mót­mæli sín, en hún ætl­aði að hlekkja sig við Hegn­ing­ar­húsið, að beiðni lög­manns síns. „Ég fékk svör í morgun. Ég heyrði í henni í morgun og hún er mjög ánægð með þetta, bara það að vera ekki alein lokuð af. Hún vill vera innan um fólk. Enda er hún ekki morð­ingi eða barn­a­níð­ingur. Hún villt­ist af leið og er að taka sig á. Það má ekki brjóta það niður sem er búið að byggja upp,“ segir Rósa.

Dóttir hennar var síð­asti fang­inn sem var fluttur úr Kópa­vogs­fang­elsi.

Finnst gott að vita af föngum í húsinu

Rósa segir að dóttir sín sé gíf­ur­lega fegin að vita að hún þurfi ein­ungis að tóra í Hegn­ing­ar­hús­inu í einn dag til við­bótar. „Það er allt betra en þetta. Hún seg­ist njóta þess í dag að heyra í kall­kerf­inu, eins og: „Guð­mundur, það er sím­inn til þín“. Þá er það ein­hver annar fangi sem var fluttur þarna. Hún seg­ist vera fegin að vita að það er ein­hver þarna, þó að það séu strákar,“ segir Rósa.

Fangaverðirnir yndislegir

Rósa vill sér­stak­lega hrósa fanga­vörðum og öðru starfs­fólki, bæði í Kópa­vogs­fang­elsi og í Hegn­ing­ar­hús­inu. „Þó að Kvenna­fang­elsið hafi verið í nið­ur­níðslu, þá stát­aði það af frá­bæru starfs­fólki,“ segir Rósa. Hún bætir enn fremur við að það sé helst fanga­vörðum í Hegn­ing­ar­hús­inu að þakka að vist dóttur hennar þar hafi verið bæri­leg. „Það sem bjargar þessu er frá­bært starfs­fólk. Þessir karlar eru allir upp til hópa alveg ynd­is­legir. Það sem ég er að gagn­rýna eru yfir­völd, að loka heilu fang­elsi og hafa ekki úrræði á hreinu eru for­kast­an­leg vinnu­brögð,“ segir Rósa og vill koma á fram­færi þökkum til fanga­varða.

Borgarfulltrúi fær fyrir hjartað

Mál dóttur Rósu hefur vakið nokkra athygli og segir Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, að hún hafi fengið í hjartað við að hugsa til fang­ans.

„Ung stúlka á ekk­ert erindi í karl­kyns gæslu­varð­halds­fang­elsi.“ 

„Sem for­maður Heil­brigð­is­nefndar á síð­asta kjör­tíma­bili heim­sótti ég Hegn­ing­ar­húsið. Ég fékk algjört sjokk. Þetta hús­næði er langt frá því að upp­fylla eðli­legar kröfur. Eftir heim­sókn­ina þá ákváðum við í sam­starfi við fang­els­is­mála­yf­ir­völd að fækka fanga­rýmum og búa til sam­eig­in­leg rými. Þrátt fyrir þær breyt­ingar þá er þetta ekki boð­legt. Ég fæ illt í hjartað við að hugsa til þess­arar stúlku. Sem betur fer er nýtt fang­elsi á Hólms­heiði að rísa en þangað til þá verðum við að finna aðrar lausnir. Ég vona að dóttir Rósu verði fundin önnur úrræði. Ung stúlka á ekk­ert erindi í karl­kyns gæslu­varð­halds­fang­elsi,“ skrifar Kristín Soffía á Facebook-síðu sinni.

Aðrir fangar sýna samhug

Afstaða, félaga fanga og ann­arra áhuga­manna um bætt fang­els­is­mál og betrun fanga, setur málið í sam­hengi við fjár­skort í fang­els­is­málum á Facebook-síðu félags­ins. „Afstaða hefur tekið þetta mál upp við Fang­els­is­mála­stofnun og lýst yfir áhyggjum af stöðu mála. Fang­els­is­mála­stofnun hefur full­yrt að ein­stak­ling­ur­inn verði fluttur í annað fang­elsi eins fljótt og hægt er og hefur Afstaða heim­ildir fyrir því að það verði fyrir helgi. Hörmu­legt ástand sem unnið er að því að leysa. Þess má geta að ástæða þess að þessi staða er kom­inn upp er sú að Fang­els­is­mála­stofnun hefur verið fjársvelt í um ára­tug núna og enn skar Alþingi niður í fjár­lögum til fang­els­is­mála um 2% þetta árið án þess að nokkur stjórn­mála­flokkur hafi gert athuga­semd við það. Fang­elsin eru á mörkum þess að geta starfað eðli­lega við þetta ástand. Lokun fang­els­is­ins í Kópavogi er bein afleið­ing þess og hefði það fang­elsi ann­ars verið opið áfram þar til fang­elsið á Hólms­heið­inni opnar,“ segir á Facebook-síðu sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fangelsismál

Ofbeldisfangar án betrunar: „Hérna eru menn með vandamál“
ÚttektFangelsismál

Ofbeld­is­fangar án betr­unar: „Hérna eru menn með vanda­mál“

„Er sál­fræð­ingur að vinna hér?“ spurði fangi á Litla-Hrauni þegar hann var inntur eftir því hvort og þá hvenær hann hefði fengið sál­fræði­við­tal. Einn sál­fræð­ingur sinnir 180 föngum sem afplána dóma á Íslandi og ekk­ert sér­hæft úrræði er fyrir fanga sem sitja inni fyrir lík­ams­árásir. Fang­arnir sögð­ust þó myndu þiggja slíka aðstoð ef hún væri mark­viss og í boði.
Barnaníðingur nýtur góðs af breytingu laga um rafrænt eftirlit
FréttirFangelsismál

Barn­a­níð­ingur nýtur góðs af breyt­ingu laga um raf­rænt eft­ir­lit

Í apríl síð­ast­liðnum var þeim Sigurði Ein­ars­syni, Magnúsi Guð­munds­syni og Ólafi Ólafs­syni sleppt út af Kvía­bryggju og á Vernd. Ástæða þess að þeir fengu frelsi fyrr en ella var laga­breyt­ing, sem þing­kona sagði sér­stak­lega smíðuð utan um þessa fanga. Einn af þeim sem nú njóta góðs af þess­ari laga­breyt­ingu er barn­a­níð­ing­ur­inn Sigurður Ingi Þórð­ar­son.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár