Fá ekki skuldaleiðréttingu: Refsað fyrir að búa í Noregi

Birgir Heiðar Búason og Ása Karitas Arn­munds­dóttir fá ekki skulda­leið­rétt­ing­una sem þeim hefur verið úthlutað nema þau flytji heim til Íslands og byrji að vinna.

Fá ekki skuldaleiðréttingu: Refsað fyrir að búa í Noregi

Við hjónin fengum úthlutað 2,8 millj­ónum króna í skulda­leið­rétt­ingu. En þegar við vildum fá þessa fjár­muni reynd­ist það úti­lokað. Eina leiðin var sú að flytja heim og byrja að vinna þar,“ segir Birgir Heiðar Búason, yfir­kokkur á Scandic-hót­eli. Hann og eig­in­kona hans, Ása Karitas Arn­munds­dóttir sáu ekki aðra leið til að bjarga sér eftir hrun en að flytja til Noregs. 
„Ég missti vinn­una heima á Íslandi og van­skilin hlóð­ust upp. Við höfðum keypt hús í Hafnar­firði sem við gerðum upp. En eftir nokk­urra mán­aða atvinnu­leysi var vand­inn orð­inn svo stór að ég ákvað að fara til Noregs og fara að vinna þar,“ segir Birgir Heiðar. 

Á tveimur árum tókst honum að ná tökum á fjár­málum sínum og greiða niður van­skilin. Fjöl­skyldan hafði verið sundruð þar sem eig­in­konan og tveir synir þeirra hjóna bjuggu á Íslandi. Ása Karitas flutti út til eig­in­manns­ins þar sem þau hafa búið síðan. Þau leigðu út hús sitt og héldu áfram að greiða af lán­unum. Á síð­asta ári seldu þau síðan húsið sitt. Svo kom skulda­leið­rétt­ingin. 

„Við sóttum um og fengum það svar að hvort okkar fengi 1,4 milljón króna. En þetta reynd­ist ekki vera í hendi. Þegar ég reyndi að nálg­ast fjár­mun­ina vand­að­ist málið. Þá var mér sagt að við yrðum að koma til Íslands og vinna þar. Á næstu fjórum árum kæmi þetta til baka í formi skatta­af­sláttar,“ segir Birgir Heiðar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár