Fá ekki að lifa og starfa á Íslandi: Þvældust í kerfinu í þrjú ár

Fjöl­skylda frá Sénégal hefur þvælst um í íslenska kerf­inu í tæp þrjú ár og hefur nú verið gert að yfir­gefa landið. Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður fjöl­skyld­unnar, furðar sig á stefnu stjórn­valda.

Fá ekki að lifa og starfa á Íslandi: Þvældust í kerfinu í þrjú ár
Bassirou Ndiaye og fjöl­skylda hans, fær ekki að vera áfram á Íslandi. Mynd: Facebook

Regine Marthe Ndiaye verður þriggja ára í maí. Hún fædd­ist á Íslandi og gengur í leik­skóla í Reykja­vík. Það sem hún veit ekki er að hún er í raun ólög­legur inn­flytj­andi og fjöl­skylda hennar nýtur því ekki sömu rétt­inda og fjöl­skyldur leik­fé­laga hennar. Henni hefur verið gert að yfir­gefa eina heim­ilið sem hún þekkir. 

For­eldrar Regine, Bassirou og Mahe Diouf, koma frá Sénégal og hafa þvælst um í íslenska kerf­inu í tæp­lega þrjú ár. Nú eru þau komin að enda­stöð og nið­ur­staðan er afger­andi – þau eiga að yfir­gefa landið. „Af hverju leyfum við ekki þeim sem eru full­frískir, vinn­andi höndum, að koma og hjálpa okkur við að við­halda vel­ferð­ar­kerf­inu, borga sína skatta og halda uppi þessu kerfi okkar með skött­unum sínum?“ spyr Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður fjöl­skyld­unnar. 

Málið í þrjú ár í vinnslu hjá Útlendingastofnun

Ndiaye-fjöl­skyldan sótti um dval­ar­leyfi hér á landi í mars 2014 og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár