Handtekinn, fluttur úr landi án fyrirvara og beittur ofbeldi þegar hann mótmælti

Eze Okafor fékk ekki tækifæri til þess að kveðja vini eða pakka saman eigum sínum áður en hann var sendur úr landi. Hann segir íslenska lögreglu­menn hafa beitt sig harðræði líkt og áverkar sýni. Verður sendur til Nígeríu í byrjun júní.

Fjögur ár í kerfinu
Fjögur ár í kerf­inu Eze Okafor sótti um hæli á Íslandi árið 2012 en mál hans hefur velkst um í kerf­inu í rúm fjögur ár. Mynd: Sigtryggur Ari

Eze Okafor, níger­ískur hælis­leitandi sem var vísað úr landi í gær, svaf á götunni í Stokk­hólmi síðastliðna nótt. Sænsk útlendinga­yfirvöld hafa gert honum ljóst að hælis­umsókn hans verði ekki endur­opnuð þar í landi þar sem meira en fjögur ár eru liðin síðan málið var til meðferðar þar í landi. Öll rök íslenskra yfirvalda byggja á því að Svíþjóð taki við honum og þar fái hann réttláta máls­meðferð. Eze segir að lögreglu­mennirnir sem fylgdu honum til Svíþjóðar hafi beitt hann harðræði en á myndum neðar í þessari frétt má sjá áverka á höndum hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár