Ellert villtist í iðrum jarðar: „Það þýðir ekkert að panikka“

Einn af fremstu hella­skoð­un­ar­mönnum lands­ins villt­ist í helli á Reykja­nesskag­anum. Það tók hann rúman klukku­tíma að rata út en mynd­skeið af svað­il­för­inni hefur vakið athygli út um allan heim. Þar sést Ellert Grét­ars­son skríða á fjórum fótum í gegnum þröngar hellar­ásir. Sjáðu mynd­bandið.

Ellert villtist í iðrum jarðar: „Það þýðir ekkert að panikka“
Ramm­villtur Ellert Grét­ars­son hefur skoðað hund­ruði hella en aldrei villst jafn lengi og nú á dög­unum.

„Mér var hætt að lít­ast á þetta en hafði meiri áhyggjur af því að batt­er­íin í ljós­inu myndu klár­ast en að ég kæm­ist aldrei út aftur. Maður kemst alltaf út fyrir rest,“ segir Ellert Grét­ars­son, ljós­mynd­ari og hella­skoð­un­ar­maður. Hann lenti í miklum ógöngum fyrir nokkrum dögum þegar hann villt­ist djúpt inni í helli á Reykja­nes­inu. Mynd­skeið af svað­il­för­inni hefur vakið athygli út um allan heim og hefur meðal ann­ars verið sýnt í banda­rískum sjón­varps­þætti.

„Allt í einu er ég staddur í völ­und­ar­húsi og maður missir fljótt áttir þarna niðri í myrkr­inu.“

Mynd­skeiðið er rúmar tíu mín­útur að lengd en það tók Ellert samt sem áður rúman klukku­tíma að rata til baka, að sjá ljósið í enda gang­anna ef svo mætti að orði kom­ast.

Undraheimur neðanjarðar
Undra­heimur neð­an­jarðar Þessar ótrú­legu ljós­myndir tók Ellert Grét­ars­son á ferða­lagi sínu úr iðrum jarðar.

Fór aðeins of langt

„Við förum yfir­leitt þrjú eða fjögur saman og erum þá að leita að ein­hverjum ákveðnum hellum. Ég fer þá yfir­leitt inn á undan í svona könn­un­ar­leið­angur til þess að skera úr um það hvort við höfum fundið hell­inn. Það er óþarfi að allir séu að græja sig ef þetta er síðan ekk­ert,“ segir Ellert sem í þetta skiptið fór aðeins of langt.

„Maður á það til að vera dálítið ákafur. Það er svo mikið af göngum og beygjum og ég var alltaf að kanna hvað væri handan næstu beygju. Allt í einu var ég staddur í völ­und­ar­húsi. Maður missir fljótt áttir þarna niðri í myrkr­inu. Þegar ég átt­aði mig á því að ég væri ramm­villtur þá fór ég að fikra mig áfram og skoða þessi göng og finna leið­ina út. Þetta var hel­víti mikið puð,“ segir Ellert og bætir við að þetta hafi verið svona eins og þre­faldur „bootcamp“ tími.

Yfir 400 hellar á Reykjanesskaganum

„Já þetta var mjög erfitt. Gólfið er mjög grýtt og grjót í hellum er mjög odd­hvasst því það er engin veðrun þarna niðri. Ég var sem betur fer með hné­hlífar, ljós og þykkar grifflur en var gjör­sam­lega búinn á því þegar ég kom upp á yfir­borðið aftur. Ég hef örugg­lega skriðið ein­hverja hund­ruði metra í heild­ina. Stundum var ég far­inn að kann­ast við mig og átt­aði mig þá á því að ég hafði farið í hring,“ segir Ellert sem vill ekki, öryggi almenn­ings vegna, greina frá því hvar umræddur hellir er á Reykja­nesskag­anum.

„Mér er sagt að það sé mikil upp­lifun að vera staddur í helli þegar jarð­skjálfti ríður yfir.“

„Reykja­nesskag­inn er eitt mesta hella­svæði lands­ins, það er svo mikið af hrauni hérna. Það eru alla­vega 400 hellar hérna á þessu svæði sem hafa verið skráðir. Þeir eru að sjálf­sögðu mis­stórir og síðan er spurn­ing hvað er hellir og hvað ekki. Þessi sem við fórum í er í tveimur hlutum,“ segir Ellert.

Taka alltaf einhvern með í hellaskoðun
Taka alltaf ein­hvern með í hella­skoðun Ellert biður alla þá sem hyggja á hella­skoðun að taka ein­hvern með sér og láta vita af ferðum sínum.

Svekktur að hafa misst af jarðskjálfta

Ertu ekk­ert hræddur við jarð­skjálfta þegar þú skríður svona í þröngum hellar­ásum? Geta þessi göng ekki bara lagst saman?

„Nei, þeir leggj­ast ekki saman. Þessir hellar hafa verið þarna í hund­ruði eða þús­undir ára og hafa staðið af sér alla jarð­skjálfta. Hætta á hruni er líka hverf­andi lítil en það getur alltaf verið lausa­grjót svo það er gott að fara var­lega.“

Hefur þú verið í helli þegar jarð­s­skálfti ríður yfir?

„Nei ég rétt missti af einum.“

Rétt misstir af einum? Ertu sem­sagt svekktur yfir því að hafa ekki verið í helli þegar jarð­skjálfti reið yfir?

„Mér er sagt að það sé mikil upp­lifun að vera staddur í helli þegar jarð­skjálfti ríður yfir. Ég rétt missti af einum sem var upp á fjóra á richter. Ég var í hell­inum deg­inum áður.“

„Númer eitt, tvö og þrjú er að fara aldrei einn í svona hella­skoðun.“

En hvað ráð­leggur þú fólki sem fer í hella­skoðun og villist svona eins og þú?

„Hraun­rása­hellar eru frekar ein­faldir og auð­velt að rata í þeim með fáum und­an­tekn­ingum. Það er meiri hætta á því að þú verðir ljós­laus eða dettur og til dæmis fót­brýtur þig. Ef eitt­hvað kemur upp þarna niðri þá ertu algjör­lega sam­bands­laus við umheim­inn. Þess vegna er mik­il­vægt að vera yfir­veg­aður. Þú verður alltaf að halda ró þinni.“

Hvað skal alltaf hafa með í för í svona ferðum?

„Númer eitt, tvö og þrjú er að fara aldrei einn í svona hella­skoðun. Þú verður alltaf að fara með ein­hverjum og láta vita af ferðum þínum áður en þú leggur af stað. Síðan hvað bún­að­inn varðar þá verður þú fyrst og fremst að vera með góð ljós. Ekki ódýr ljós af bens­ín­stöð­inni. Ég tek alltaf ljós með og vara­ljós og vara­vara­ljós. Síðan tek ég með mér gommu af batt­er­íum í þetta allt saman,“ segir Ellert sem hefur séð ýmis­legt í gegnum árin.

Með ljós, varaljós og varavaraljós
Með ljós, vara­ljós og vara­vara­ljós Ljósið er númer eitt, tvö og þrjú þegar það kemur að hella­skoðun.

Ferðamenn notuðu kveikjara til að lýsa

„Já ég hef séð fólk sem ætl­aði að nota ljós­gjafann á far­sím­anum sínum. Það er ekki vit­ur­legt. Síðan man ég eftir ferða­mönnum sem þurfti að bjarga hérna ein­hvern tím­ann um árið. Þau höfðu notað kveikjara. Síðan klárað­ist gasið.“

Þá segir Ellert að fyrir þá sem ætla djúpt inn í helli sé gott að hafa með sér­stök díóðu­ljós sem hægt er að nota sem merk­ingar á leið­inni. Þau er til dæmis gott að nota á mótum hellarása svo auð­veld­ara sé að rata til­baka. Hann var ekki með slík ljós þegar hann villt­ist.

Sjón er sögu rík­ari - fyrir þá sem vilja skoða ótrú­legar ljós­myndir af hellum er bent á síðu Ellert - www.elg.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár