„Ekkert réttlæti í réttarkerfinu“

„Hvað er að mér að taka fokk­ing vid­eoið,“ sagði maður sem Júlía Birg­is­dóttir kærði fyrir að taka upp kyn­lífs­mynd­band af þeim og dreifa á net­inu. Hann lýsir sig sak­lausan en á milli þeirra hafa gengið skila­boð þar sem hann seg­ist ekki muna eftir þessu, en við­ur­kennir að hafa tekið upp mynd­bandið og biðst afsök­unar á því. Júlía höfð­aði jafn­framt einka­mál á hendur honum en því var vísað frá fyrir hér­aðs­dómi. Hún hefur kært þá nið­ur­stöðu. Nú vill hún að hefnd­arklám verði skil­greint í hegn­ing­ar­lögum en fyrir liggur frum­varp á Alþingi þess eðlis.

„Ekkert réttlæti í réttarkerfinu“

Júlía Birg­is­dóttir hefur kært nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að vísa frá einka­refsi­máli þar sem hún fór fram skaða­bætur fang­els­is­refs­ingu yfir manni sem birti kyn­lífs­mynd­band af þeim á net­inu. Kæran nær þó aðeins til refsirétt­ar­ins en ekki bóta­rétt­ar­ins. 

Mynd­bandið var tekið án vit­undar og vit­neskju Júlíu, inni á heim­ili hennar. 
Maðurinn lýsir yfir sak­leysi sínu en hefur ákveðið að tjá sig ekki við fjöl­miðla. Það mun lög­maður hans ekki heldur gera. Fyrir dómi sagði hann hins vegar að sak­ar­giftir væru með öllu til­hæfu­lausar og ekki studdar neinum sönn­un­ar­gögnum.

Engu að síður hefur mað­ur­inn ítrekað beðið Júlíu afsök­unar í skrif­legum sam­skiptum sem gengu þeirra á milli og Stundin hefur undir höndum. Þar ber hann því fyrir sig að hann myndi ekki eftir þessu, en segir meðal ann­ars: „Fyrst þetta gerð­ist þá biðst ég inni­lega afsök­unar á því og spyr hvort það sé eitt­hvað sem ég get gert til að bæta fyrir það?“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár