„Eins og í heimsendabíómynd“

Benjamín Julian og Heiða Karen ferð­ast á milli grískra eyja og aðstoða flótta­menn. Straumur flótta­manna til Grikk­lands hefur aldrei verið meiri á þessum árs­tíma. Fólk býr í tjöldum á kaldri mold­ar­flöt og brennir pappa­kass­ana utan af hjálp­ar­gögnum til að halda á sér hita.

„Eins og í heimsendabíómynd“
Flótta­manna­geymsla Benjamín kallar búð­irnar í Moria flótta­manna­geymslu. Fólki sem Evrópa vilji ekki sjá sé hrúgað þar upp og það látið bíða.

Þetta er hrotta­legt. Ég veit ekki hvernig þetta verður í vor,“ segir Benjamín Julian sem hefur síð­ustu vik­urnar ferð­ast um eyjur Grikk­lands og aðstoðað flótta­menn ásamt Heiðu Karenu Sæbergs­dóttur. Þau vinna með ýmsum sjálf­boða­liða­sam­tökum, meðal ann­ars við að fæða þann gríð­ar­lega fjölda fólks sem heldur til í hinum ýmsu flótta­manna­búðum lands­ins. Blaða­maður Stund­ar­innar heyrði í þeim á milli verk­efna og fékk að fræð­ast um það hvernig neyð­ar­á­standið á grísku eyj­unum horfir við þeim. Þau benda á að á síð­ustu árum hafi verið lít­ill straumur af flótta­fólki til Grikk­lands á þessum árs­tíma. „Núna eru þrjú til fimm þús­und manns að koma dag­lega þótt hér sé hávetur.“

Benjamín bendir á að allt síð­asta ár hafi nær allur straumur flótta­manna til Evrópu farið í gegnum landið. „Gríska ríkið hefur nær engin ráð á að skrá og hýsa allt fólkið, svo búð­irnar og skrán­ing­ar­mið­stöðv­arnar eru mjög hrá­slaga­legar og fær­ast til nán­ast viku­lega. Á þeim bið­stöðvum sem hafa staðið í lengri tíma fyllist allt mjög hratt og tjald­búðir spretta upp í kring. Þar brennir fólk sér timbur og rusl til að halda á sér hita, svo allt fyllist af eitr­uðum reyk.“ Þau segj­ast hafa séð ein­hverja við­leitni til að halda fjöl­skyldum frá verstu aðstæð­unum, en hún dugi skammt.

Allir vilja norður

„Fyrsta krafa evr­ópskra yfir­valda hefur lengi verið að allir séu skráðir og stimpl­aðir inn við komu til Evrópu,“ segir Benjamín og bendir á að þetta valdi því að fólk sé fast vikum saman í hörmu­legum aðstæðum, „krókn­andi 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár