Ein stærsta og dýrasta ljósasýning landsins í Leifsstöð

Kostaði 190 millj­ónir króna að setja upp lýs­ingu þar sem hægt er að setja á norð­ur­ljósa­still­ingu, íslenska fán­ann ef Íslend­ingar verða Evr­ópu­meist­arar í fót­bolta og fleira.

Ein stærsta og dýrasta ljósasýning landsins í Leifsstöð
Flugstöð Leifs Eiríks­sonar Ef Íslend­ingar sigra EM í knatt­spyrnu í ár þá gæti Isavia kallað fram íslenska fán­ann með nýrri LED-lýs­ingu. Mynd: ISAVIA ohf.

Farþegar sem eiga leið um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á næst­unni gætu átt von á óvæntri ljósa­sýn­ingu, senni­lega þeirri stærstu og dýr­ustu sem sögur fara af hér á landi. Ástæðan er sú að Isavia ohf., sem sér um rekstur Kefla­vík­ur­flug­vallar, réð­ist nýverið í breyt­ingar á lýs­ingu fyrir um fimm þús­und fer­metra versl­un­ar­svæði í norð­ur­bygg­ingu flug­stöðv­ar­innar.

Breyt­ing­arnar kost­uðu 190 millj­ónir króna og fór Isavia með verkið í útboð í gegnum Rík­is­s­kaup. Þrír aðilar skil­uðu inn til­boði. Lægst­bjóð­andi var Raf­miðlun með tæpar 190 millj­ónir sem er kostn­aður við efni, vinnu og upp­setn­ingu. Aðrir bjóð­endur voru Fagtækni og Bergraf.

Nýjasta tækni í LED

Samkvæmt Guðna Sig­urðs­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Isavia, er nýja lýs­ingin til komin vegna þess að sú sem fyrir var var komin til ára sinna: „...auk þess sem breyta þurfti lýs­ingu eftir að versl­anir, þjón­usta og örygg­is­leit færð­ist til en mis­mun­andi lýs­ing­ar­þarfir eru á þessum stöðum og mik­il­vægt að tryggja vinnu­vernd­ar­sjón­ar­mið við lýs­ingu á svo stórum vinnu­stað.“

„Á venju­legum degi er þetta bara venju­leg hvít lýs­ing en á tylli­dögum er til dæmis hægt að setja á norð­ur­ljósa­still­ingu.“

Þetta er þó engin venju­leg lýs­ing heldur nýjasta tækni í svo­kall­aðri LED-lýs­ingu og gerir Isavia kleift að nán­ast stjórna hverri ein­ustu díóðu í lofti flug­stöðv­ar­innar.

Norðurljósasýning fyrir farþega

Með þessu er meðal ann­ars hægt að kalla fram „norð­ur­ljósa­sýn­ingu“ en Guðni segir að þetta sé í takt við umhverf­is­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins þar sem LED-lýs­ing noti mun minna raf­magn og sé því bæði ódýr­ari í rekstri og umhverf­is­vænni.

„LED býður einnig upp á mik­inn sveigj­an­leika í að breyta styrk, litum, hlý­leika ljóss og fleira, til dæmis er hægt að hafa hlýrri/kald­ari birtu, jóla­lega birtu um jólin, líkja eftir norð­ur­ljósum og fleira. Þannig er hægt að tengja stemn­ing­una í flug­stöð­inni við árs­tíð­irnar eða það sem er að ger­ast á Íslandi hverju sinni. Eitt af mark­mið­unum við end­ur­hönnun versl­un­ar­svæð­is­ins var að tengj­ast betur nátt­úru Íslands í lita­vali og hönnun og auka far­þega­upp­lifun, þessi sveigj­an­leiki í lýs­ingu er þáttur í því,“ segir Guðni.

Hægt að búa til fána Gay Pride

Norð­ur­ljósa­sýn­ingin er aðeins lítið brot af því sem fyr­ir­tækið getur nú kallað fram með nýju lýs­ing­unni en Guðni segir að hægt sé að for­rita nán­ast hvað sem er inn í ljósa­kerfið.

„Þetta er í raun bara venju­leg RGB LED-lýs­ing sem hægt er að for­rita alls­konar „mood lýs­ingu“ í. Á venju­legum degi er þetta bara venju­leg hvít lýs­ing en á tylli­dögum er til dæmis hægt að setja á norð­ur­ljósa­still­ingu, íslenska fán­ann ef Íslend­ingar verða Evr­ópu­meist­arar í fót­bolta, Gay Pride fán­ann á hinsegin dögum og svo fram­vegis. Við vorum sem sagt bara að upp­færa almenna lýs­ingu og ákváðum að taka þennan fídus líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár