„Ég hef komist að því að ég er neyslufíkill samfélagsmiðla“

Vaka Njáls­dóttir seg­ist hafa mis­notað sam­fé­lags­miðla og skapað heim sem er ekki til. Notar myllu­merkið #lítum­upp til að vekja athygli á skað­semi þess­ara miðla.

„Ég hef komist að því að ég er neyslufíkill samfélagsmiðla“

„Ég hef verið í átak­an­legum pæl­ingum síð­ustu daga. Svo erf­iðum að ég hef ekki sofið og jafn­vel grátið mig í svefn. Ég hef kom­ist að því að ég er neyslu­fík­ill sam­fé­lags­miðla,“ skrif­aði Vaka Njáls­dóttir, rit­stýra Verzlunarskólablaðsins, á Instagram síð­una sína í gær. Þar vekur hún athygli á skað­legu sam­bandi sínu við sam­fé­lags­miðla og notar til þess myllu­merkið #lítum­upp. Við­brögðin hafa verið gríð­ar­leg og hafa fjöl­margir sett sig í sam­band við Vöku og þakkað henni fyrir að opna á þessa umræðu. 

„Ég hef verið að hugsa um að gera þetta síðan í sumar en vissi að þetta væri við­kvæmt mál og að margir yrðu ósam­mála mér. Ég er sjálf svo háð sam­fé­lags­miðlum og var ekki viss um að ég myndi þora að gera þessar breyt­ingar. En fólk talar mjög mikið um þessa fíkn, hversu háð við erum orðin skjánum og símunum og þessa til­búnu ímynd af okkur sjálfum á net­inu. Ég geymdi þetta bak við eyrað þar til Essena O’Neill steig fram og opn­aði á umræð­una,“ segir Vaka í sam­tali við Stundina en hin ástr­alska Essena O’Neill hefur vakið heims­at­hygli á síð­ustu dögum eftir að hún sagði skilið við sam­fé­lags­miðla. O’Neill var með yfir 700 þús­und fylgj­endur á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár