„Ef maðurinn er ekki múslimi, þá hlýtur hann nú að vera geðsjúkur. Ráðgátan leyst?“

Ingólfur Sig­urðs­son knatt­spyrnu­maður telur að með því að beina sífellt sjónum að geð­heilsu þeirra sem fremja voða­verk sé alið á for­dómum gagn­vart geð­sjúkum. „Þung­lyndur maður tor­tímir ekki sjálfum sér ásamt full­set­inni flug­vél vegna þess að þung­lyndið gerði honum það. Ekki frekar en það skipti máli hverrar trúar hann er,“ skrifar hann.

„Ef maðurinn er ekki múslimi, þá hlýtur hann nú að vera geðsjúkur. Ráðgátan leyst?“

Ingólfur Sig­urðs­son knatt­spyrnu­maður vakti mikla athygli þegar hann steig fram árið 2014 og lýsti því hvernig er að lifa með kvíða­röskun. Und­an­farin ár hefur hann skrifað pistla og flutt fyr­ir­lestra um and­leg veik­indi íþrótta­fólks og opnað þannig umræð­una um mál sem áður lágu í þagn­ar­gildi. 

Í dag veltir hann því fyrir sér á Facebook-síðu sinni hvers vegna það er jafn algengt og raun ber vitni að þeir sem fremja ódæð­is­verk séu stimpl­aðir sem geð­sjúk­lingar. Stundin fékk leyfi til að birta hug­leið­ingu Ingólfs í heild: 

Ég er geð­sjúk­lingur – sem getur verið bara ansi fínt svona inn á milli – og ég þekki fullt af öðrum geð­sjúk­lingum. Þessi hat­ramma bar­átta við sjálfið reyn­ist fólki erfið – óáþreif­an­legur sárs­auki og hávær alsæla – sífellt að reyna miða sig við rúðu­strikað sam­fé­lagið og stað­setja sig öðru hvoru megin við lín­una.

Geð­sjúk­ling­arnir sem ég þekki eru allir gott fólk. Flestir þeirra eiga sam­eig­in­legt að vera við­kvæmir, næmir og hæfi­leik­a­ríkir. Sveifl­urnar gefa aukna dýpt til þess að setja lífið í sam­hengi – því maður er alltaf að leita svara, maður vill skilja og mæta skiln­ingi.

Það er óhugna­leg bylgja voða­verka í heim­inum og eins og gefur að skilja flytja fjöl­miðlar fréttir af ódæð­unum. Þegar komið er í ljós hve margir hafa fallið eða særst bein­ast spjótin að árás­armann­inum sem er krufinn til mergjar. Þá er jafnan brýn­ast að segja frá því að mað­ur­inn hafi verið geð­sjúkur og jafn­vel þurft á ein­hverjum tíma­punkti ævi­skeiðs síns að leggj­ast inn á geð­deild til skamms tíma. Ef mað­ur­inn er ekki múslimi, þá hlýtur hann nú að vera geð­sjúkur. Ráðgátan leyst, eða hvað?

Voðaverk sem þessi eiga ekki skylt við það að vera geð­sjúkur – heldur eitt­hvað allt annað og alvar­legra. Þung­lyndur maður tor­tímir ekki sjálfum sér ásamt full­set­inni flug­vél vegna þess að þung­lyndið gerði honum það. Ekki frekar en það skipti máli hverrar trúar hann er. Eða hvort hann sé hald­inn lík­am­legum sjúk­dómi. Eða hvað hann borð­aði í morg­un­mat. Mér finnst það heldur ein­feldn­ings­legur dóms­úr­skurður að und­ir­strika geð­heilsu árás­armanns í fjöl­miðlum til þess eins að loka mál­inu. Það vekur for­dóma gegn geð­sjúk­lingum sem hafa ekk­ert unnið sér til saka og myndu ekki gera nokkrum manni mein – nema hugs­an­lega sjálfum sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár