Uppruni dularfulls óþefs fundinn í Reykjanesbæ

Fjöl­margir íbúar í Reykja­nesbæ fundu fyrir ólykt í bænum nú fyrir helgi og um helg­ina. Miklar umræður hafa spunn­ist um til­urð lykt­ar­innar á sam­fé­lags­miðlum auk þess sem Umhverf­is­stofnun hafa borist kvart­anir vegna hennar.

Uppruni dularfulls óþefs fundinn í Reykjanesbæ

Mikla ólykt lagði yfir hluta Reykja­nes­bæjar nú fyrir og um helg­ina. Miklar umræður hafa spunn­ist um málið á sam­fé­lags­miðlum auk þess sem Umhverf­is­stofnun hefur fengið kvart­anir vegna lykt­ar­innar.

Stundin hafði sam­band við Umhverf­is­stofnun en Sigríður Krist­jáns­dóttir, teym­is­stjóri eft­ir­litsteymis Umhverf­is­stofn­unar, stað­festi það í sam­tali við Stundina að stofn­un­inni hefðu borist kvart­anir vegna lyktar nú um helg­ina en sam­kvæmt henni beindust kvart­an­irnar gegn fiski­mjöls­verk­smiðju sem stað­sett er í Helguvík.

Ekki bræðslunni að kenna

Fór í taugarnar á bæjarbúum
Fór í taug­arnar á bæj­ar­búum Lyktin fannst víða í Reykja­nesbæ.

„Umhverf­is­stofnun hafði sam­band við Síld­ar­vinnsl­una í morgun til að afla upp­lýs­inga. Þá kom í ljós að engin starfs­semi var hjá fyr­ir­tæk­inu um helg­ina en síð­asta bræðsla fór fram dag­ana 7. til 10. mars síð­ast­lið­ins og var gæði hrá­efnis sem þá var notað innan marka í starfs­leyfi. Lyktin sem fannst um helg­ina getur því ekki stafað frá fiski­mjöls­verk­smiðj­unni,“ sagði Sigríður.

Þá sagði Sigríður enn fremur að haft hafi verið sam­band við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­nesja og þar á bæ könn­uð­ust menn ekki við fisk­verkun eða hausa­þurrkun í Reykja­nesbæ.

En hvaðan kom þá lyktin?

Stundin fékk ábend­ingu um að lyktin væri kannski ekki þess eðlis að hún gæti hafa komið frá fiski­mjöls­verk­smiðj­unni vegna þess hve mikil „skíta­lykt“ þetta væri. Sá sem kom ábend­ing­unni áleiðis til blaðs­ins taldi að um væri að ræða lykt af hænsna­skít sem reglu­lega væri dreift á svæði í kring um Reykja­nesbæ til land­græðslu.

Haft var sam­band við Stefán Má Sím­on­ar­son, fram­kvæmda­stjóra Nesbús á Vatns­leysu­strönd, en hann stað­festi að fyr­ir­tækið hefði selt tölu­vert magn af hænsna­skít til Hesta­manna­fé­lags­ins Mána sem á stórt og mikið land­svæði við Mána­grund, rétt hjá stór­iðju­svæð­inu Helguvík, sem er aðeins tæpum tveimur kíló­metrum frá byggð.

Skítalykt yfir bæinn í norðanátt

Svæðið er stað­sett norð­an­megin í Reykja­nesbæ en um og yfir helg­ina var norð­an­átt í Reykja­nesbæ sem gæti útskýrt af hverju ólyktin barst yfir bæinn. Stefán Már sagði fyr­ir­tækið reglu­lega selja hænsna­skít til hinna ýmsu aðila á Suð­ur­nesjum sem nýta hann til áburðar en skít­ur­inn er keyptur í tanka­vís og síðan dreift með þar til gerðum vinnu­vélum.

Bera ábyrgð á lyktinni
Bera ábyrgð á lykt­inni Hesta­manna­fé­lagið Máni bar fyrir helgi hænsna­skít á svæði þeirra á Mána­grund, norðan við Reykja­nesbæ.

Haft var sam­band við for­mann Hesta­manna­fé­lags­ins Mána, Gunnar Eyj­ólfs­son. Hann stað­festi við Stundina að félagið hefði keypt hænsna­skít af Nesbú og að dreif­ing hans hafi átt sér stað ekki fyrir svo löngu síðan, fyrir mögu­lega viku eða tveim. Til­gangur dreif­ing­ar­innar var upp­græðsla á land­svæði í eigu hesta­manna­fé­lags­ins.

Bíða eftir rigningunni

„Þetta er ekki gert nema kannski einu sinni á ári, þegar það eru til pen­ingar fyrir þessu. Þetta er nátt­úru­leg­asti áburður sem hægt er að finna og er rosa­lega góður til þess að græða upp móa og mela. Áburð­ur­inn dugar í hátt í tvö ár og það er ekki hægt að neita því að það er lykt af honum. Skítnum rignir niður á ein­hverjum dögum og það er það sem okkur hefur vantað, það er að segja rign­ingin,“ segir Gunnar sem von­ast til þess að lykt­inni fari að linna og að hin kær­komna rign­ing fari að láta sjá sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár