Dögun kvartar undan þöggun

Fram­kvæmda­ráð flokks­ins er óánægt með að aðrir miðlar en Mbl.is fjalli ekki um álykt­anir sem Dögun sendir frá sér. „Dögun hvetur blaða­menn til að fara betur með þær lýð­ræð­is­legu skyldur sem þeir hafa,“ segir í frétta­til­kynn­ingu.

Dögun kvartar undan þöggun
Helga Þórð­ar­dóttir for­maður Dögunar Mynd: Dögun

Fram­kvæmda­ráð Dögunar telur að flokk­ur­inn sé beittur þöggun í fjöl­miðlum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef flokks­ins um helg­ina. „Það er deg­inum ljós­ara að fjöl­miðlar hunsa flest allar álykt­anir og frétta­til­kynn­ingar frá Dögun, stjórn­mála­sam­tökum um rétt­læti, sann­girni og lýð­ræði. Þó að einum frétta­miðli und­an­skildum, net­miðl­inum Mbl.is,“ segir þar. Er fundið að því að aðrir fjöl­miðlar en Mbl.is hafi ekki fjallað um lands­fund flokks­ins. Í ljósi þessa hygg­ist flokk­ur­inn  setja á lagg­irnar eigin frétta­veitu, net­sjón­varp, og er stefnt að útsend­ingum á fyrsta árs­fjórð­ungi 2016. „Dögun hvetur blaða­menn til að fara betur með þær lýð­ræð­is­legu skyldur sem þeir hafa,“ segir í lok til­kynn­ing­ar­innar.

Dögun bauð fram í síð­ustu þing­kosn­ingum en náði ekki inn þing­manni. Samkvæmt lögum flokks­ins er til­gangur hans að „stuðla að betra sam­fé­lagi, sem hefur umburð­ar­lyndi, rétt­læti, heið­ar­leika, sið­gæði og lýð­ræði að leið­ar­ljósi. Sam­fé­lagi sem byggir á virkni og ábyrgð þegn­anna og jafn­ræði allra, óháð aldri, búsetu, kyni, efna­hag, kyn­þætti, trú­ar­brögðum, fötlun, kyn­hneigð, stöðu eða upp­runa.” Í fram­kvæmda­ráði Dögunar sitja Sigríður Fossberg Thorlacius, Ragn­hildur L. Guð­munds­dóttir, Björgvin Vídalín, Baldvin Björg­vins­son og Gunnar Hólm­steinn Ársæls­son. Formaður flokks­ins er Helga Þórð­ar­dóttir og vara­for­maður Sigurður Har­alds­son. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár