Deilur og ævintýri í Túnis

Bjarki Fjarki Rúnar Gunn­ars­son fór sem sjálf­boða­liði til Túnis í fyrra. Bjarki var níu mán­uði úti, lenti í póli­tískum deilum milli tveggja sjálf­boða­liða­sam­taka og eyddi sumr­inu í óvissu, ásamt nokkrum öðrum sjálf­boða­liðum frá öðrum löndum.

Deilur og ævintýri í Túnis
Borgin Sousse Bjarki dvald­ist í útjaðri borg­ar­innar Sousse við strönd Túnis.

Daginn sem Bjarki lenti í Túnis var hann að mestu einn. Tekið var á móti honum á flug­vell­inum og honum sýnt hvar hann átti að gista. „Menn­ing­ar­sjokkið var gríð­ar­legt, ég bjó einn í nokkrar vikur án þess að vita hvað ég átti að gera. Svo vissi ég ekk­ert hvernig mat ég átti að kaupa eða hvað væri í lagi, fór á ein­hvern markað þarna og keypti mér brauð og það sem ég hélt að væri smjör en svo var það bara eitt­hvað allt annað og örugg­lega ekki ætlað á brauð,“ segir Bjarki hlæj­andi. „Fyrstu dag­ana borð­aði ég ein­tómt brauð en aðal­lega lifði ég bara á mjólk. Kvöld­mat­ur­inn var bara mjólk í nokkra daga. En ég reyndi að útskýra hvað núðlur væru og það var bara hlegið að mér.“

Túnis er talið með frjáls­lynd­ari Afr­íku­löndum og segir Bjarki það hafa sést. „Það voru næt­ur­klúbbar og fólk drakk alveg þarna og konur gengju ekki endi­lega með slæður þrátt fyrir að vera múslimar. Það er gríð­ar­leg sam­heldni milli fólks­ins og þrátt fyrir stundum ofsa­lega mikla fátækt þá bíður fólk manni hik­laust í mat, þó það eigi varla nóg mat fyrir fjöl­skyld­una sína. Fólkið er mjög hlý­legt og tekur vel á móti manni.“

Sjálfboðaliði veldur usla með veggjakroti

Í heild­ina voru 13 sjálf­boða­liðar í sama verk­efni og Bjarki en frá mis­mun­andi sam­tökum. Bjarki fór út á vegum AUS eða Alþjóð­legum ung­menna­sam­skiptum, Ítölsku sam­tökin AFSAI höfðu svo milli­göngu með flutn­ingnum út og tóku sam­tökin AJMEC á móti sjálf­boða­lið­unum úti. Það voru þrír sjálf­boða­liðar ásamt Bjarka sem fóru út fyrir milli­göngu AFSAI. „Við fengum þrjár íbúðir í góðu hverfi, við vorum nálægt túrista­hverf­inu í rólegu umhverfi í útjaðri Sousse. Reyndar eru fyrstu vik­urnar enn í smá móðu. Menn­ing­ar­sjokkið var bara svo gríð­ar­legt að ég átt­aði mig held ég bara ekki almenni­lega á hvað var að ger­ast í kringum mig,“ segir Bjarki hugsi. „Fyrstu vik­urnar gekk vel, við vorum í tví­skiptum verk­efnum þar sem við vorum í félags­heim­ili eða svona frí­stund­ar­heim­ili fyrir börn fyrir hádegi og svo í garð­yrkju eftir hádegi. Einn sjálf­boða­lið­inn, Pedro, var í tveggja mán­aða skamm­tíma­verk­efni, það urðu leið­indi þegar hann fékk sent til sín bréf sem ein­hver hafði opnað og sak­aði hann einn leið­bein­and­anna um að hafa opnað bréfið. Þetta olli gríð­ar­legum leið­indum og þegar Pedro lauk tíma­bil­inu sínu þá skrif­aði hann „Fuck Jalel Babay“ á vegg­inn í íbúð­inni hjá okkur, en Jalel Babay var leið­bein­and­inn sem hann sak­aði um að hafa opnað bréfið. Úr þessu varð heil­mikið mál og fengum við hinir sjálf­boða­lið­arnir skammir fyrir hans gjörðir, það var ekki sann­gjarnt,“ segir Bjarki.

Blaða­maður hefur undir höndum sam­töl þar sem sýnt er fram á þetta og einnig að sjálf­boða­liðum er hótað að þeir yrðu sendir heim ef þeir hegði sér ekki, þar sem þeim er hrein­lega kennt um hegðun ann­arra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár