Dæmd til að greiða 750 þúsund krónur

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir krot­aði á bíl nágranna síns og tap­aði meið­yrða­máli gegn Reyni Trausta­syni

Dæmd til að greiða 750 þúsund krónur

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, tap­aði í dag meið­yrða­máli sínu gegn Reyni Trausta­syni, fyrr­ver­andi rit­stjóra DV. Hún var dæmd til að greiða allan lög­fræði­kostnað Reynis, eða um 750 þús­und krónur.

Ásgerður stefndi Reyni per­sónu­lega fyrir frétt sem birt­ist í DV í júlí árið 2013 þar sem nágrannar hennar sögðu hana hafa tússað á bíla. Þar var haft eftir Sverri Tómasi Bjarna­syni, nágranna Ásgerðar og við­mæl­anda DV, að hún hafi verið kærð fyrir eigna­spjöll en hún krot­aði „einka­stæði“ á glugga og spegla bíls­ins.

Lögmaður Ásgerðar Jónu,Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, hélt því fram fyrir dómi að hún hafi ekki verið kærð form­lega heldur hafi lög­reglu aðeins verið til­kynnt um eigna­spjöllin. Vil­hjálmur hélt því sömu­leiðis fram að Ásgerður væri ekki opin­ber per­sóna. Katrín Smári Ólafs­dóttir, lög­maður Reynis Trausta­sonar, mót­mælti því að hún væri opin­ber per­sóna með þeim rökum að hún hafi stigið inn í kast­ljós fjöl­miðla þegar hún tók við stöð for­manns Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár