Borginni óheimilt að semja við þá sem hafa verið sakfelldir fyrir sviksemi

Í inn­kaupa­reglum Reykja­vík­ur­borgar segir að óheim­ilt sé að gera samn­ing við þá sem hafa verið sak­felldir fyrir spill­ingu, svik­semi, pen­inga­þvætti eða þátt­töku í skipulagri brota­starf­semi. Borgin samdi við félag í eigu Ólafs Ólafs­sonar um upp­bygg­ingu 332 íbúða í Voga­byggð fyrr í mán­uð­inum. Ólafur fékk fjög­urra og hálfs árs fang­els­ins­dóm fyrir hlut­deild sína í Al Thani-mál­inu. Í svari borg­ar­lög­manns kemur fram að samn­ing­ur­inn flokk­ist ekki sem inn­kaup.

Borginni óheimilt að semja við þá sem hafa verið sakfelldir fyrir sviksemi
Ólafur Ólafsson Félag í eigu Ólafs samdi nýlega við Reykja­vík­ur­borg um upp­bygg­ingu 332 íbúða í Voga­byggð, þrátt fyrir að borg­inni sé óheim­ilt að semja við þá sem hafa verið sak­felldir fyrir svik­semi. Ólafur var dæmdur fyrir hlut­deild í Al-Thani mál­inu, sem snérist um umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun.

Reykja­vík­ur­borg er óheim­ilt að gera samn­ing við þá sem hafa verið sak­felldir fyrir spill­ingu, svik­semi, pen­inga­þvætti eða þátt­töku í skipu­legri brota­starf­semi. Þetta kemur fram í inn­kaupa­reglum borg­ar­innar, en Jenný Stefanía Jens­dóttir, for­maður Gagnsæis, sam­tökum gegn spill­ingu, vakti athygli á þessu á Facebook-síðu sinni í gær. 

Festir ehf., félag í eigu Ólafs Ólafs­sonar athafna­manns, und­ir­rit­aði þann 13. mars síð­ast­lið­inn samn­ing við Reykja­vík­ur­borg um upp­bygg­ingu 332 íbúða á Gelgju­tanga. Ólafur var sem kunn­ugt er dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir þátt sinn í Al-Thani-mál­inu svo­kall­aða. Málið sner­ist um kaup félags í eigu sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani frá Katar á rúm­lega fimm próstent hlut í Kaup­þingi banka árið 2008, en í ljós hefur komið að Al-Thani lagði bank­anum ekki til nýtt fé með kaup­unum heldur voru þau fjár­mögnum með lánum frá bank­anum sjálfum sem veitt voru í gegnum aflands­fé­lög. 

Ný rann­sókn­ar­skýrsla leiddi í ljós að svip­uðum aðferðum var beitt við kaup Ólafs og félaga á Bún­að­ar­bank­anum árið 2003 þegar látið var líta út fyrir að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser væri aðili að kaup­unum. Í raun var eig­andi hlut­ar­ins aflands­fé­lagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jóm­frúa­eyjum. Með fjölda leyni­legra samn­inga og milli­færslum á fjár­munum, meðal ann­ars frá Kaup­þingi hf., inn á banka­reikn­ing Welling & Partners hjá Hauck & Auf­häuser, var þýska bank­anum tryggt skað­leysi af við­skipt­unum með hluti í Bún­að­ar­bank­anum. 

Reykjavíkurborg yrði skaðabótaskyld

Vogabyggð
Voga­byggð Voga­byggð austan Sæbrautar verður breytt í íbúða- og atvinnu­svæði. Svæðið er í dag ein­göngu atvinnu­svæði en eftir breyt­ingar verður fjórð­ungur hús­næðis ætl­aður atvinnu­starf­semi. Gert er ráð fyrir 1.100 íbúðum í hverf­inu eftir breyt­ingar.

Þrátt fyrir áður­nefnt ákvæði í inn­kaupa­reglum borg­ar­innar segir Hrólfur Jónsson, sviðs­stjóri fram­kvæmda- og eigna­sviðs Reykja­víkur, að eign­ar­hald fyr­ir­tækja sem borgin íhugar að semja við sé ekki rætt sér­stak­lega og því hafi for­tíð Ólafs ekki komið til tals í þessu til­felli. „Und­ir­rit­uðum var ljóst hver var meiri­hluta­eig­andi félags­ins. Það er hins vegar ekki gerð sér­stök grein fyrir eign­ar­haldi þegar samn­ingar eru lagðir fyrir borg­ar­ráð af hálfu skrif­stof­unnar,“ sagði Hrólfur í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Frétta­tím­ans fyrr í mán­uð­inum. 

Björn Blöndal, for­maður borg­ar­ráðs, segir í sam­tali við RÚV í dag að Reykja­vík­ur­borg yrði skaða­bóta­skyld ákveði borg­ar­yf­ir­völd að rifta samn­ingi við félag Ólafs. Slík ákvörðun myndi auk þess tefja eða eyði­leggja verk­efnið. 

Bygg­ing­areit­ur­inn gengur undir heit­inu Voga­byggð og er áformað að upp­bygg­ing hefj­ist á fyrri hluta árs 2018 og að í heild sinni verði allt að 1.300 íbúðir í hverf­inu. Reykja­vík­ur­borg og lóða­hafar munu standa sam­eig­in­lega að upp­bygg­ingu svæð­is­ins. Þess má geta að Festir átti fyrir allar bygg­ing­arnar á Gelgju­tanga, sem liggur að athafna­svæði Samskipa við Kjal­ar­vog í Reykja­vík, og mun félagið rífa þessar fast­eignir til að byggja íbúð­irnar.

Stundin hefur sent fyr­ir­spurn á borg­ar­lög­mann Reykja­víkur vegna máls­ins. Svar borg­ar­lög­manns var að við­kom­andi við­skipti teld­ust ekki „inn­kaup“ í skiln­ingi regln­anna.

„Inn­kaupa­reglur Reykja­vík­ur­borgar gilda um inn­kaup, þ.e. um kaup á þjón­ustu, vörum og verk­legum fram­kvæmdum, sbr. 4. gr. inn­kaupa­reglna Reykja­vík­ur­borgar. Umræddur samn­ingur, sem varðar skipu­lag, upp­bygg­ingu og þróun á þar til greindu svæði í borg­ar­land­inu, fellur ekki undir inn­kaupa­reglur Reykja­vík­ur­borgar þar sem hann varðar ekki inn­kaup í skiln­ingi inn­kaupa­regln­anna. Af því leiðir að ákvæði 28. gr. inn­kaupa­reglna Reykja­vík­ur­borgar gildir ekki um samn­ing­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár