Bjarni: „Ég hef hvergi sagt að geðlyf virki ekki eða að lyfjagjöf sé líkt og að vökva dáið blóm“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi þar sem hann þver­tekur fyrir að hafa sagt að geð­lyf virki ekki eða að lyfja­gjöf sé líkt og að vökva dáið blóm. Yfir­lýs­ingin kemur í kjöl­far umræðu sem skap­að­ist á Twitter í gær vegna mynd­bands af Bjarna þar sem hann er sagður líkja notkun geð­lyfja við að reyna að vökva dáið blóm.

Bjarni: „Ég hef hvergi sagt að geðlyf virki ekki eða að lyfjagjöf sé líkt og að vökva dáið blóm“
Bjarni Bene­dikts­son For­sæt­is­ráð­herra sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi þar sem hann þvertók fyrir að hafa líkt notkun geð­lyfja við að vökva dáið blóm. Mynd: Pressphotos

Mikil umræða skap­að­ist á sam­skipta­for­rit­inu Twitter í gær vegna mynd­bands af Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra þar sem hann er sagður vera að líkja notkun geð­lyfja við að reyna að vökva dáið blóm. Mynd­bandið var tekið í stjórn­mála­fræði­tíma við Verzlunarskóla Íslands í gær. Bjarni sendi sjálfur frá sér yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi þar sem hann þvertók fyrir að hafa gert slíka mynd­lík­ingu og sagði umræð­una afar dap­ur­lega. 

Á mynd­band­inu sést Bjarni standa við tús­stöflu í skóla­stofu. Búið er að teikna tvö blóm á töfl­una, annað las­legra en hitt. Þegar mynd­bandið hefst er Bjarni að teikna úða­brúsa sem vísar á las­lega blómið. Þegar því er lokið spyr hann við­stadda „Eruð þið að ná þessu?“ og því svarar ein­hver úr salnum: „Nei.“ Stuttu seinna lýkur mynd­band­inu, sem er um sjö sek­úndur að lengd. Þess má geta að mynd­bandið hefur nú verið fjar­lægt. 

Í kjöl­farið sendu sam­tökin GEÐSJÚK frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu: 

„Nú gengur um for­ritið mynd­bands­brot af for­sæt­is­ráð­herra okkar Bjarna Bene­dikts­syni þar sem hann líkir notkun geð­lyfja við það að reyna að vökva dautt blóm. Orð þessi lét for­sæt­is­ráð­herra útúr sér í stjórn­mála­fræði­tíma við Verzlunarskóla Íslands í dag, þegar hann var spurður út í áform rík­is­stjórn­ar­innar um betrun á geð­heil­brigð­is­kerf­inu. Sé það mein­ing Bjarna að geð­lyf séu gervi­þörf og til­gangs­laus, rétt eins og að reyna að vökva líf­laust blóm, biðlum við til for­sæt­is­ráð­herra að kynna sér málið til hlítar og draga þessi ummæli sín til baka. Einnig biðlum við til hans og sitj­andi rík­is­stjórnar að taka skýra afstöðu til geð­heil­brigð­is­mála í land­inu og vin­sam­leg­ast standa vörð um geð­heilsu þjóð­ar­innar með bættu aðgengi, for­dóma­leysi og skiln­ingi. Virð­ing­ar­fyllst, GEÐSJÚK“. 

Upp úr mið­nætti í gær sendi Bjarni sjálfur frá sér yfir­lýs­ingu á Twitter þar sem hann sagð­ist hvergi hafa sagt að geð­lyf virki ekki eða að lyfja­gjöf sé líkt og að vökva dáið blóm. Þá sagði hann umræð­una afar dap­ur­lega. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár