Varar við spenningi vegna hlýnunar jarðar

Í drögum að álykt­unum Fram­sókn­ar­flokks­ins er talað um „spenn­andi sókn­ar­færi“ vegna hlýn­unar jarðar. Árni Finnson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, varar við við­horf­inu.

Líkt og Stundin greindi frá fyrr í dag er vísað til þess að áhrifin af hlýnun jarðar séu „spenn­andi sókn­ar­færi“ fyrir íslenskan land­búnað í drögum að álykt­unum fyrir flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sem haldið verður um helg­ina.

Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, er ósáttur við orða­lagið og varar við skað­semi þessa við­horfs.

„Menn hafa hrein­lega afneitað vand­anum“

„Við megum engan tíma missa og því virka yfir­lýs­ingar eða álykt­anir þess efnis að í lofts­lags­breyt­ingum felist „spenn­andi sókn­ar­færi“ eins og hver annar bjána­skapur. Í besta falli. Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa við­brögðin verið önnur. Menn hafa hrein­lega afneitað vand­anum eða gert lítið úr honum. Innan Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa menn lengi reynt að telja bændum trú um að land­bún­aður sé atvinnu­grein fram­tíð­ar­innar og senni­lega er þessi ályktun (drög) dæmi þar um. Menn virð­ast halda að land­bún­aður á Íslandi verði eins og á Skáni eða í Suður Noregi þrátt fyrir að Ísland verði áfram stað­sett á sömu gráðu Umeå (sunnan lands) og Luleå (norðan lands),“ segir Árni.

Skordýr gætu flutt sig norður

Árni bendir enn fremur á að hlýnun jarðar mun vís­ast hafa skelfi­leg áhrif á land­búnað á Íslands. Hvað land­búnað varðar getur hlýnun hæg­lega rústað upp­skerum því í loft­lags­breyt­ingum felst líka óstöðugt veð­ur­far. „Sömu­leiðis gætu skor­dýr flutt sig hingað norður eftir og gert drauma fram­sókn­ar­manna um skóg­rækt á skand­in­av­ískum skala að engu,“ segir Árni.

Loftslagsbreytingar geta haft hörmuleg áhrif á sjávarútveg

Hann bendir á að þó land­bún­aður gæti haft góð áhrif af lofts­lags­breyt­ingum þá hefði það hörmu­leg áhrif á sjáv­ar­út­veg. „Menn vilja gera lík­legt að á Íslandi verðu land­bún­aður höf­uða­tvinnu­vegur; að héðan verði flutt út korn, hveiti og skóg­ar­af­urðir. Á hinn bóg­inn - lesi menn skýrslu IPCC sem kom út á síð­asta ári geta menn fundið margt til að ótt­ast þegar fram­tíð sjáv­ar­út­vegs er ann­ars vegar. Ekki bara súrnun. Hlýnun sjávar kemur okkur vel þessi miss­erin vegna þess að mak­ríll­inn gengur á Íslands­mið en ekk­ert segir að stofnar hér við land haldi tryggð við Íslands­mið þegar hlýnun áger­ist (eða kólnun vegna veik­ari Golfstraums). Nýlegt dæmi eru erf­ið­leikar við að finna loðn­una,“ segir Árni.

Tvískinnungur hjá Sigmundi

Árni bendir á að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tali um tæki­færi loft­lags­breyt­inga en svo virð­ist sem það sé bara til heima­brúks. Sig­mundur hafi talað ein­dregið og varað við loft­lags­breyt­ingum í ávarpi á ráð­stefnu um loft­lags­breyt­ingar sem Ban Ki-moon hélt í sept­em­ber í fyrra. „Vissu­lega er umræða af þessu tagi ekki bundin við Fram­sókn­ar­flokk­inn ein­göngu en lík­lega er hann eini stjórn­mála­flokk­ur­inn sem heldur þessu blákalt fram. Fyrir rúmu einu ári síðan kommenter­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son á nýút­komna skýrslu IPCC um lofts­lags­breyt­ingar og vildi þá meina að þrátt fyrir allt fælust viss tæki­færi í stöð­unni fyrir Ísland. Hann fékk á sig flóð­öldu gagn­rýni sem ekki síst byggði á ábend­ingum vís­inda­manna þess efnis að súrnun sjávar væri ákaf­lega hættu­leg íslenskum hags­munum,“ segir Árni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár