Auglýsing Joe & the Juice tekin úr umferð á Keflavíkurflugvelli

„Framundan: 40 kíló­metrar af engu nema hrauni og mosa. Það er eins gott að þú fyllir á,“ stóð í aug­lýs­ingu veit­inga­stað­ar­ins sem birt var á aug­lýs­inga­skjám í komu­sal flug­vall­ar­ins. Fjöl­margir gagn­rýndu aug­lýs­ing­una, meðal þeirra var bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Auglýsing Joe & the Juice tekin úr umferð á Keflavíkurflugvelli
40 kíló­metrar af engu nema hrauni og mosa Aug­lýs­ingin var tekin úr birt­ingu í kvöld.

Ekki voru allir sáttir við aug­lýs­ingu veit­inga­stað­ar­ins Joe & the Juice sem birt­ist á sér­stökum aug­lýs­inga­tölvu­skjá í komu­sal Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar um helg­ina. Þar aug­lýsti veit­inga­stað­ur­inn að ekk­ert væri framundan fyrir ferða­menn nema 40 kíló­metrar af hrauni og mosa.

„Við hljótum að gera athuga­semdir við þetta strax á morgun“

Meðal þeirra sem gagn­rýndu aug­lýs­ing­una var bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, Kjartan Már Kjart­ans­son, en hann sagði í kvöld á sam­fé­lags­miðlum að bæj­ar­fé­lagið myndi gera athuga­semdir við hana.

„Við hljótum að gera athuga­semdir við þetta strax á morgun,“ sagði bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, Kjartan Már Kjart­ans­son, í dag.

Reiði á samfélagsmiðlum

Upplýsingafulltrúi ISAVIA
Upp­lýs­inga­full­trúi ISAVIA Guðni Sig­urðs­son segir að aug­lýs­ingin hafi verið tekin úr birt­ingu í kvöld.

Í aug­lýs­ing­unni stóð orð­rétt: „Welcome! Ahead: 40 KM of not­hing but lava and moss. You better stock up.“ Það þýðir ein­fald­lega á íslensku að ekk­ert sé framundan fyrir ferða­menn nema hraun og mosi þar til komið er til Reykja­víkur.

Líkt og gefur að skilja þótti þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á svæð­inu á sig hallað og braust út reiði í hópum á Facebook, meðal ann­ars í hópi íbúa í Reykja­nesbæ.

Svo virð­ist sem að þessar gagn­rýn­is­raddir hafi heyrst í flug­stöð­inni því sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var ákveðið að taka aug­lýs­ing­una úr birt­ingu í dag.

Auðsótt að taka úr birtingu strax

Haft var sam­band við Guðna Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúa ISAVIA, en hann sagði ekki um aug­lýs­inga­skilti að ræða heldur aug­lýs­ingu á skjá í komu­sal og því hafi verið hægt að taka hana úr birt­ingu með skömmum fyr­ir­vara.

„Eftir að gagn­rýni á aug­lýs­ing­una kom upp var það sam­eig­in­leg ákvörðun rekstr­ar­að­ila Joe & the Juice og Isavia að best væri að skipta aug­lýs­ing­unni út. Þar sem þetta var raf­ræn aug­lýs­ing í skjá var auð­sótt mál að taka aug­lýs­ing­una úr birt­ingu strax.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár