Fer fyrir dóm í dag: „Ég er algjörlega saklaus, ég hata ekki neinn mann“

Fimm manns fara fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í dag fyrir hat­urs­orð­ræðu gegn hinsegin fólki. Guð­fræð­ing­ur­inn Jón Valur Jensson segir að mál sitt sé sama og unnið. Fyrr­ver­andi sókn­ar­prest­ur­inn Jón Hag­barður Knútsson er einn þeirra ákærðu.

Fer fyrir dóm í dag: „Ég er algjörlega saklaus, ég hata ekki neinn mann“

Pétur Gunn­laugs­son, útvarps­maður á Útvarp Sögu, og Jón Valur Jensson, guð­fræð­ingur, eru meðal átta ein­stak­linga sem eru ákærðir fyrir hat­urs­orð­ræðu gegn hinsegin fólki. Þeir eru ákærðir út frá hegn­ing­ar­lögum númer 233, grein a, sem segir: „Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opin­ber­lega á hóp manna vegna þjóð­ernis þeirra, lit­ar­háttar, kyn­þáttar eða trú­ar­bragða sæti sektum, varð­haldi eða fang­elsi allt að 2 árum.“ 

Mál Jóns Hag­barðar Knúts­sonar, fyrr­ver­andi sókn­ar­prests, Ara Hermanns Odds­sonar, fram­kvæmda­stjóra og þrí­þraut­ar­kappa, Jón Vals Jens­sonar, guð­fræð­ings og blogg­ara, Pétur Gunn­laugs­sonar útvarps­manns og eldri borg­ar­ans Carls Jóhanns Lilli­endahls er þing­fest í dag í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Þrjú önnur mál bíða þing­fest­ingar. 

Þetta mál brýtur blað í sögu dóm­stóla á Íslandi, en þetta er í fyrsta skiptið sem slík ákæra er lögð fram vegna hat­urs­orð­ræðu gegn hinsegin fólki. Þessi hegn­ing­ar­lög hafa aðeins einu sinni leitt til sak­fell­ingar, en það var í máli íslenska rík­is­ins gegn Hlyni Frey Vig­fús­syni árið 2002 vegna kyn­þátt­a­níðis. 

Líkti samkynhneigð við barnaníð

Pétur Gunn­laugs­sonPétur er ásak­aður um að hafa líkt sam­kyn­hneigð við barn­a­níð.

Jón Hag­barður, fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur Rauf­ar­hafn­ar­kirkju, sagði: „No komment, takk, bless,“ þegar blaða­maður hafði sam­band við hann um málið. Hvorki náð­ist í Ara Hermann né Pétur Gunn­laugs­son, en sá síð­ar­nefndi líkti sam­kyn­hneigð við barn­a­níð í þætti sínum „Línan er laus“ á Útvarpi sögu 20. apríl 2015. Hann sagði í síma­tíma útvarps­stöðv­ar­innar í síð­ustu viku: „Ég er bál­reiður, ég skal alveg við­ur­kenna það að ein­hver lög­reglu­stjóri hér skuli saka mig um þetta.“ 

Í þætti sínum í apríl í fyrra ræddi Pétur við inn­hringj­endur, var­aði við hinsegin fræðsl­unni og tók undir umræðu um að börnum yrðu látin stunda sam­kyn­hneigt kyn­líf. Einn inn­hringj­andi, Hulda, ýjaði að því að börnin yrðu látin stunda kyn­líf: „Er þetta sýni­kennsla? Er þetta verk­leg kennsla?“

„Ég bara vil ekki hugsa út í það einu sinni,“ svar­aði Pétur. „Þarf að fara að sýna þeim, eða kenna þeim eða káfa á þeim? Hver er mein­ingin?“ spurði hún áfram. „Þetta er inn­ræt­ing­ar­starf­semi. Það er alveg ljóst. Þetta er eins og trú­boð,“ full­yrti Pétur þá. „Út með þetta og inn með kristni­fræðsl­una,“ sagði inn­hringj­and­inn að lokum.

„Styðst ekki við neitt raunverulegt“

Jón Valur Jensson guð­fræð­ingur vísar ákærunni á bug og seg­ist vera sak­laus að öllu, og að blogg­færsl­urnar þrjár sem hann er ákærður fyrir vera innan ramma tján­ing­ar­frelsis. „Þetta er algjör­lega frá­leit ákæra, hún styðst ekki við neitt raun­veru­legt og er ein­fald­lega ákæru­vald­inu til skammar,“ segir hann.

Jón Valur JenssonJón Valur seg­ist ekki hata neinn mann.

Umræddar blogg­færslur birt­ust 17. apríl, 20. apríl og 21. apríl 2015. Þær fjalla um ákvörðun bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar um hinsegin fræðslu í grunn­skólum með aðstoð Sam­tak­anna ‘78. Í færsl­unum gagn­rýnir Jón Valur meðal ann­ars „inn­grip sam­kyn­hneigðra í í skóla­göngu 6-15 ára barna“, kvart­aði undan „inn­ræt­ing­ar­starf­semi“ og „inn­ræt­ing­ar­ferli“ og vitnar í skoð­ana­könnun Útvarps sögu með þeirri nið­ur­stöðu að 84% væru and­snúnir hinsegin fræðsl­unni, en þátt­tak­endur í könnun útvarps­stöðv­ar­innar eru gjarnan mark­hópur stöðv­ar­innar. „Ég tel þetta vera algjör­lega unnið mál af minni hálfu. Ég er algjör­lega sak­laus frá því að vera með ein­hverja hat­urs­orð­ræðu, það er bara ekki minn háttur að gera það, ég hata ekki neinn mann.“ 

Aðspurður um and­stöðu sína við hinsegin fræðslu skóla­barna segir hann: „Ég er bara ósáttur við það að það eigi að byrja með hana án þess að það komið nokkurn tím­ann til tals hjá stjórn­mála­flokk­unum. Það hefur aldrei neitt af þessu tagi verið borið undir þá eða á fundi með almenn­ingi.“

Jón Valur bætti við að stór hluti sjálf­stæð­is­manna í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar greiddu atkvæði með þess­ari til­lögu og gaf í skyn að það væri gert af ein­hverri hræðslu við það að skera sig úr frá póli­tískri rétt­hugsun. „Nítján ára bæj­ar­full­trúi leggur fram ein­hverja hálf­s­blað­síðna grein­ar­gerð sem skýrir í raun­inni mjög lítið um hvað á að fara fram í þess­ari svököll­uðu hinsegin fræðslu fyrir börn frá sex ára aldri alveg upp í fimmtán. Mörgum þykir þetta algjör­lega fáheyrt og ekki í lagi, sér­stak­lega að fá Samtökin ‘78 í þetta án þess að þeir séu taldir þurfa sér­stak­lega fag­lega menntun á sviði kyn­fræðslu eða kennslu­rétt­indi.“ 

„Hatur leiðir bara af sér meira hatur“ 

Björg Val­geirs­dóttir er lög­maður Sam­tak­anna ‘78 og lagði upp­haf­lega fram kæru gegn tíu ein­stak­lingum í apríl 2015 fyrir þeirra hönd. Hún segir að í kjöl­far til­lög­unar um hinsegin fræðslu í grunn­skólum Hafn­ar­fjarðar hafi sam­fé­lags­miðlar logað af hatri án þess að lög­regla, sem hefur frum­kvæð­is­skyldu í þessum mála­flokki, hafi gert nokkuð í því. Í kjöl­far þess hafi Samtökin ákveðið að athaf­ast í mál­inu. Lögregla lét málið falla niður án rann­sóknar, en rík­is­sak­sókn­ari skip­aði lög­reglu í nóv­em­ber 2015 að rann­saka hvort ummælin væru refsi­verð. Málið hefur nú ratað til dóm­stóla.

Björg Val­geirs­dóttirBjörg segir skoð­un­ar­frelsi vera algjört, en að tján­ing sem styður eða hvetur til hat­urs í garð minni­hluta­hópa geti verið refsi­verð.

„Við vildum reyna á það hvort svona umræða sé í lagi,“ segir hún blaða­manni yfir síma. Hún bendir á að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu fyrir stuttu í máli Vejdeland gegn Svíþjóð að hat­urs­orð­ræða í garð hinsegin fólks sé refsi­verð, og að ákvæði í íslenskum hegn­ing­ar­lögum séu á sama máli. „Það er mjög eðli­legt að dóm­stólar skeri úr um hvort að svona orð­ræða sé refsi­verð eða ekki. Þetta er auð­vitað próf­mál.“ 

 „Hatur leiðir bara af sér meira hatur“

Björg segir að sam­tök hinsegin fólks á Íslandi hafi verið mjög öflug í mann­rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks og að mark­vissum árangri hafi verið náð. Hins­vegar standi hinsegin fólk frammi fyrir miklu bakslagi í dag, og telur að það þurfi að stöðva það í fæð­ingu áður en það nær að grass­era og spilla góðum árangri. „Hatur leiðir bara af sér meira hatur, og jafn­vel ofbeldi, og maður vill ekki að svona fái bara að við­gang­ast þegar öll þessi rétt­indi hafa náðst í gegn fyrir þennan minni­hluta­hóp sem hinsegin fólk er. Viljum við fara aftur til þess tíma sem fólk hafði rang­hug­myndir um hvað það þýðir að vera hinsegin?“ 

Stendur vörð um tjáningarfrelsið 

Björg telur umræð­una vera á villi­götum þegar fólk líki þess­ari ákæru við tak­mörkun á tján­ing­ar­frelsi. „Skoð­un­ar­frelsi er ótak­markað, en tján­ing­ar­frelsi tak­markast ýmist af frið­helgi einka­lífs, eða af refsi­vernd minni­hluta­hópa eins og reynir á í þessum til­vikum., af því að niðr­andi, smán­andi, meið­andi hat­ur­soræða í garð minni­hluta­hópa, og það er til­tekið í ákvæð­inu út af kyn­þætti og kyn­ferð, ef þú gerir það þá er tján­ingin refsi­verð.

„Lög­gjafin hefur metið það sem svo að nauð­syn­legt sé að sporna gegn tján­ingu sem styður eða hvetur til hat­urs í garð minni­hluta­hópa. Tjáning sem fellur að þess­ari skil­grein­ingu telst refsi­verð og er um leið und­an­skilin stjórn­ar­skrár­vernd tján­ing­ar­frels­is­ins.“ 

Ekki er að finna hvenær mál hinna þriggja ein­stak­ling­anna sem eru ákærður verður þing­fest. Samtökin ‘78 kærðu einnig tvo aðra ein­stak­linga sem til­heyra umdæmum lög­regl­unnar á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesi. Ekki feng­ust svör frá lög­reglu um stöðu þeirra rann­sókna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár