Rangfærslur í fréttatilkynningu ASÍ – Þingkona segir einhverja hafa „séð hag sinn í að dreifa röngum fréttum“

Trygg­inga­stofnun fylgdi ekki gild­andi lögum heldur „vilja lög­gjafans“ við útgreiðslu elli­líf­eyris í jan­úar og febr­úar.

Rangfærslur í fréttatilkynningu ASÍ – Þingkona segir einhverja hafa „séð hag sinn í að dreifa röngum fréttum“

Alþýðu­sam­bandið sendi út ranga frétta­til­kynn­ingu í gær þar sem full­yrt var að fjöldi líf­eyr­is­þega myndi þurfa að end­ur­greiða Trygg­inga­stofnun umtals­verðar fjár­hæðir vegna mis­taka sem urðu við breyt­ingar á almanna­trygg­inga­lögum síð­asta haust. Eins og áður hefur komið fram ollu mis­tökin því að sam­kvæmt laga­bók­stafnum hefðu tekjur úr líf­eyr­is­sjóðum ekki átt að gilda til skerð­ingar á elli­líf­eyri eins og stefnt var að. Í jan­úar og febr­úar fór Trygg­inga­stofnun eftir vilja lög­gjafans en ekki laga­bók­stafnum, en rétt fram­kvæmd lag­anna hefði kostað hið opin­bera um 5 millj­arða króna. Mistökin voru leið­rétt með aft­ur­virkri laga­setn­ingu í gær­kvöldi. 

Frétta­til­kynn­ing Alþýðu­sam­bands­ins, sem vakti tals­verða í gær og rataði í frétt á RÚV, byggði á þeirri for­sendu að Trygg­inga­stofnun hefði fylgt lögum við útgreiðslu elli­líf­eyris í jan­úar og febr­úar. „Fjöldi líf­eyr­is­þega mun nú þurfa að end­ur­greiða Trygg­inga­stofnun umtals­verðar fjár­hæðir. Málið hefur verið afgreitt úr vel­ferð­ar­nefnd þings­ins með miklu flýti án þess að nægi­legt tæki­færi hafi gef­ist til umræðu og umsagna,“ sagði í til­kynn­ing­unni sem upp­haf­lega birt­ist á vef ASÍ undir yfir­skrift­inni „Líf­eyr­is­þegar borga fyrir mis­tök Alþingis“. 

Stundin sendi Gylfa Arn­björns­syni, for­seta ASÍ, tölvu­póst um hádeg­is­leytið í gær og benti á að til­kynn­ingin væri á skjön við upp­lýs­ingar sem fram hefðu komið á Alþingi. Spurt var hvort raunin væri virki­lega sú að elli­líf­eyr­is­þegar þyrftu að end­ur­greiða Trygg­inga­stofnun umtals­verðar fjár­hæðir. Tölvu­póst­inum var ekki svarað og enn hefur frétta­til­kynn­ing ASÍ ekki verið leið­rétt. Nichole Leigh Mosty, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, full­yrti í umræðum á þing­inu í gær­kvöldi að „ein­hverjir hafi séð hag sinn í að dreifa röngum fréttum um meintar end­ur­greiðslur“. Þegar hún var spurð nánar út í ummæli sín sagð­ist hún vona að umræddir aðilar hefðu gert mis­tök.

Frétta­til­kynn­ing ASÍ stóð óbreytt í allan gær­dag og hvorki vel­ferð­ar­ráðu­neytið né Trygg­inga­stofnun gerðu athuga­semdir við hana opin­ber­lega fyrr en í morgun. „Ljóst er að mis­tökin munu ekki leiða til þess að líf­eyr­is­þegar þurfi að greiða til baka til TR, eins og rang­lega hefur verið haldið fram í fjöl­miðlum,“ segir í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Trygg­inga­stofn­unar í dag. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið tekur í sama streng: „Leið­rétt­ing Alþingis á mis­tökum sem urðu þegar breyt­ingar voru gerðar á lögum um almanna­trygg­inga 25. októ­ber sl. munu ekki hafa neinar afleið­ingar í för með sér fyrir líf­eyr­is­þega, líkt og rang­lega er haldið fram í yfir­lýs­ingu sem ASÍ sendi frá sér í gær. Engar ofgreiðslur hafa átt sér stað og engan þarf að krefja um end­ur­greiðslur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár