Arnþrúður segir ríkissaksóknara vanhæfan vegna samkynhneigðar

Gefnar hafa verið út ákærur á hendur átta ein­stak­lingum sem Samtökin ‘78 kærðu í fyrra­vor fyrir hat­ursá­róður. Línurnar á Útvarpi Sögu hafa logað frá því að greint var frá ákær­unum í gær. Lögregla vís­aði mál­inu í fyrra frá en rík­is­sak­sókn­ari sneri þeirri ákvörðun. Arn­þrúður Karls­dóttir á Útvarpi Sögu telur Sigríði Frið­jóns­dóttur rík­is­sak­sókn­ara van­hæfa þar sem hún sé sam­kyn­hneigð.

Arnþrúður segir ríkissaksóknara vanhæfan vegna samkynhneigðar
Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son Pétur er einn þeirra átta sem ákærðir hafa verið fyrir hat­ursá­róður. Þeim Arnþrúði og Pétri finnst illa vegið að tján­ing­ar­frels­inu. Margir sem hringt hafa inn á Útvarp Sögu eru þeim sam­mála. Mynd: Pressphotos

Það er stór áfangi að gefnar hafi verið út ákærur á hendur átta ein­stak­lingum sem Samtökin ‘78 kærðu í fyrra­vor fyrir hat­urs­orð­ræðu. Þetta segir lög­maður sam­tak­anna, Björg Val­geirs­dóttir.

„Það eitt að þessi mál fari fyrir dóm er mjög mik­il­vægt. Þetta eru mál af þeim toga sem fara sjaldan fyrir dóm­stóla,“ segir Björg. Þetta sé rök­rétt nið­ur­staða miðað við eðli þeirra ummæla sem sam­tökin kærðu og í því sam­hengi sem þau birt­ust.

Ákæran byggir á 233. grein a í almennum hegn­ing­ar­lögum, sem hljómar svo:

Hver sem opin­ber­lega hæð­ist að, róg­ber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða ann­ars konar tján­ingu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóð­ernis, lit­ar­háttar, kyn­þáttar, trú­ar­bragða, kyn­hneigðar eða kyn­vit­undar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár