Áralangri baráttu við kerfið hvergi lokið

Ástríður Páls­dóttir hefur staðið í ára­langri bar­áttu við íslenska ríkið frá því eig­in­maður hennar, Páll Her­steins­son, lést á Land­spít­al­anum árið 2011. Ástríður sakar starfs­fólk Land­spít­al­ans um van­rækslu í aðdrag­anda and­láts hans, en hér­aðs­dómur var ekki sama sinnis. Hún hyggst áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar auk þess sem hún hefur lagt fram tvær aðrar kærur á hendur tveimur heil­brigð­is­starfs­mönnum.

Áralangri baráttu við kerfið hvergi lokið

Íslenska ríkið var þann 5. febr­úar síð­ast­lið­inn sýknað í hér­aðs­dómi í skaða­bóta­máli Ástríðar Páls­dóttur, en hún telur starfs­fólk Land­spít­al­ans hafa sýnt af sér stór­fellt gáleysi við grein­ingu og með­ferð Páls Her­steins­sonar pró­fess­ors, eig­in­manns hennar, sem lést á spít­al­anum í októ­ber 2011. Ástríður hyggst áfrýja nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar, en að auki hefur hún lagt fram tvær aðrar kærur á hendur tveggja ein­staka heil­brigð­is­starfs­manna; ann­ars vegar fyrir skjala­fals og hins vegar fyrir að segja ósatt í skýrslu­töku. Þá kærði hún einnig ákvörðun Lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að hætta rann­sókn á mál­inu til rík­is­sak­sókn­ara. „Ég get ekki leyft þeim að kom­ast upp með þetta,“ segir Ástríður í sam­tali við Stundina.

Hneig niður fimm tímum eftir heimkomu

Ástríður sagði frá bar­áttu sinni í við­tali við Frétta­blaðið árið 2014 en að auki hefur hún haldið úti heima­síðu þar sem hún rekur málið og birtir gögn þess tengdu. 

Ástríður og Páll höfðu verið gift í rúm þrjá­tíu ár og voru bæði líf­fræð­ingar. Páll var pró­fessor við Háskóla Íslands og Ástríður starfar sem sam­einda­líf­fræð­ingur á Keldum. Forsaga máls­ins er sú að mið­viku­dag­inn 28. sept­em­ber árið 2011 var Páll lagður inn á Land­spít­ala vegna gríð­ar­legra kvið­verkja. Þremur dögum eftir inn­lögn 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár