Akstur ráðherrabíls á Þingvöllum vakti athygli gesta

Reynt er að tak­marka akstur á stígnum en und­an­tekn­ingar eru gerðar.

Akstur ráðherrabíls á Þingvöllum vakti athygli gesta

Ekki er alfarið óheim­ilt að aka að Þing­valla­kirkju, þótt beðist sé undan því, sam­kvæmt svörum frá fræðslu­full­trúa Þjóð­garðs­ins á Þing­völlum. Tveir menn og dóttir ann­ars þeirra þurftu að stíga til hliðar af stíg sem liggur að Þing­valla­kirkju svo Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og eig­in­kona hans kæmust fram hjá á Landcruiser-jeppa for­sæt­is­ráð­herra. Skammt frá er að finna skilti þar sem beðist er undan því að ekið sé niður að kirkj­unni. 

„Gaman að sjá hvað for­sæt­is­ráð­herra Íslands var jákvæður áðan, að láta konu sína keyra um á göngu­stígum þjóð­garðs­ins á Þing­völlum í dag, þannig að við þurftum að stíga til hliðar svo þau kæmust fram hjá,“ skrif­aði annar við­mæl­enda Stund­ar­innar á Facebook þann 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hinn við­mæl­and­inn stað­festir frá­sögn­ina og segir að skömmu áður hafi þau orðið vitni að því þegar ferða­mönnum á bíl var vísað af stígnum.

Uppfært 8. jan­úar kl. 13:15: Bent hefur verið á að veg­ur­inn sem hér er fjallað um liggur einnig að bústað for­sæt­is­ráð­herra sem er við hlið­ina á Þing­valla­kirkju. Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi Vef­pressunnar og fyrr­ver­andi starfs­maður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, vekur athygli á þessu á Facebook. „Þennan veg hafa for­sæt­is­ráð­herrar því notað und­an­farna ára­tugi til að kom­ast til og frá bústaðnum,“ skrifar hann.​

Að sögn Einars Á. E. Sæmund­sen, fræðslu­full­trúa Þjóð­garðs­ins á Þing­völlum, hefur verið reynt að tak­marka umferð að kirkj­unni og Þing­vallabæ til að bæta ásýnd stað­ar­ins. „Það eru bara þeir sem eiga erindi að Þing­vallabæ og Þing­valla­kirkju og starfs­fólk í sínum erindum sem keyrir þarna niður eftir,“ segir hann og bætir því við að skiltið hafi verið sett upp til að minnka sjón­ræn áhrif af bílum. Engu að síður séu ýmsar und­an­tekn­ingar gerðar, svo sem fyrir þá sem eiga sér­stakt erindi í kirkj­una og vegna opin­berra heim­sókna.

 Í sam­tali við Stundina seg­ist Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs, ekki vita hvort Sig­mundur hafi skroppið á Þing­velli þessa helgi. Skemmst er að minn­ast þess að síð­asta sumar gekk mynd á Facebook af Sigmundi, þar sem hann sat í Land Cruiser-jepp­anum sem lagt hafði verið í tvö bíla­stæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár