Sigmundur segir að sér hafi verið hótað vegna gjaldeyrishaftanna

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir að það yrði áhyggju­efni fyrir sam­fé­lagið ef bylt­ing­ar­flokkar, og flokkar með mjög óljósar hug­myndir um lýð­ræði, næðu áhrifum. Hann segir að sér hafi verið hótað.

Sigmundur segir að sér hafi verið hótað vegna gjaldeyrishaftanna

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, er í for­síðu­við­tali í helg­ar­blaði DV sem dreift er frítt á heim­ili í dag. Í við­tal­inu varar hann við því að Píratar kom­ist til valda, þar sem þeir séu bylt­ing­ar­flokkur, og segir að sér hafi verið hótað vegna gjald­eyr­is­haft­anna. Sig­mundur nefnir ekki hver hafi hótað honum.

„Ég veit að ákveðnir aðilar sem vildu hafa áhrif á umræð­una út af hafta­mál­unum fóru skipu­lega að dreifa ýmsum sögum um mig og þá með það að mark­miði að reyna að draga úr trú­verð­ug­leika mínum og skaða mögu­leika mína á því að hafa áhrif á gang mála. Og talandi um fjár­kúgun og hót­anir, þá hef ég meira að segja fengið hót­anir úr þeim ranni.“

„Menn væru í aðstöðu til að skaða okkur veru­lega.“

Sig­mundur er spurður nánar út í eðli hót­an­anna af Kolbrúnu Berg­þórs­dóttur, rit­stjóra DV, sem tók við­talið við hann. „Þess eðlis að rík­is­stjórnin væri að ganga þannig fram gagn­vart þessum aðilum að við myndum fá að gjalda þess fylgdum við þess­ari stefnu áfram. Menn væru í aðstöðu til að skaða okkur veru­lega. Það er mjög hættu­legt fyrir stjórn­málin ef það er orðin bar­áttu­leið að leggj­ast í per­són­u­of­sóknir og hóta mönnum og telja það bestu leið­ina til að ná sínu fram.“

Á for­síðu DV er vísað til ummæla hans með fyr­ir­sögn­inni: Hótuðu að skaða Ísland. Ekki kemur fram í við­tal­inu hvort Sig­mundur hafi kært hót­an­irnar.

Varar við Pírötum

Sig­mundur segir það áhyggju­efni fyrir íslenskt sam­fé­lag ef skoð­ana­kann­anir ganga eftir í næstu Alþing­is­kosn­ingum og Píratar ná 30 til 40 pró­senta fylgi. „Þá myndi taka við allt ann­ars konar stefna í sam­fé­lag­inu þar sem erfitt gæti verið að við­halda þeim gildum sem við höfum þó verið að sækj­ast eftir og byggja upp um ára­tuga skeið,“ segir Sig­mundur Davíð meðal ann­ars í  sem er dreift frítt inn á heim­ili í dag.

Á öðrum stað í við­tal­inu er hann inntur eftir því hvort honum hugn­ist ekki til­hugs­unin um að Píratar kom­ist til valda. „Ef almenn óánægja yrði til þess að bylt­ing­ar­flokkar og flokkar með mjög óljósar hug­myndir um lýð­ræði og flokkar sem vilja umbylta grunn­stoðum sam­fé­lags­ins nái áhrifum þá væri það mikið áhyggju­efni fyrir sam­fé­lagið allt og yrði stærri breyt­ing en svo að staða ein­stakra stjórn­mála­manna skipti máli,“ segir Sig­mundur Davíð og tekur fram að hann efist hins vegar um að nið­ur­stöður kosn­inga verði þær sömu og  skoð­ana­kann­anir gefa nú vís­bend­ingu um. 

„Erfitt gæti verið að við­halda þeim gildum sem við höfum þó verið að sækj­ast eftir og byggja upp um ára­tuga skeið.“

Vaxandi fylgi Pírata

Í nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR mæld­ust Píratar aftur langstærsti flokk­ur­inn og er nú kom­inn með 34,5 pró­senta fylgi. Fylgi Pírata hefur farið hratt vax­andi frá því í byrjun þessa árs en þann 19. mars síð­ast­lið­inn mæld­ist flokk­ur­inn í fyrsta skipti  með mesta fylgi allra flokka á Íslandi í könnun MMR. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs hefur hins vegar aldrei mælst minni. 

Píratar
Píratar Píratar fá tutt­ugu nýja þing­menn sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum.

Stundin fjall­aði um þessa gríð­ar­legu stefnu­breyt­ingu kjós­enda í síð­asta tölu­blaði og ræddi meðal ann­ars við Huldu Þór­is­dóttur, lektor við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, en hún hefur sér­hæft sig í rann­sóknum á sviði stjórn­mála­sál­fræði. „Ungt fólk finnur sig ekki í leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar og flokks­holl­usta hefur farið minnk­andi á Íslandi eftir hrun,“ útskýrði hún meðal ann­ars. „Það varð gríð­ar­legt hrun í póli­tísku trausti við hrunið og þar með fór þetta fasta flokks­fylgi mjög mikið á flakk og afar margir hafa ekki fundið sér aftur neinn heima­flokk. Eins og við sjáum á þessum skoð­ana­könn­unum þá gildir um marga sem núna segj­ast styðja Pírata að þeir kusu síð­ast Fram­sókn­ar­flokk­inn og einnig Bjarta fram­tíð. Hverjir kusu þessa flokka síð­ast? Það voru þeir sem voru að leita að ein­hverju nýju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár