Fuglafár í 10-11

Smá­fuglar flögra um verslun 10-11 á flótta undan vonda veðr­inu.

Fuglafár í 10-11

Ekki ein­ungis mann­fólkið er kalt og hrakið í dag en smá­fuglar sækja nú í hit­ann inn í 10-11 í Aust­ur­stræti. Ekki verður betur séð en allt að tíu smá­fuglar hafi komið sér fyrir í versl­un­inni. „Þeir hafa smeygt sér inn út af veðr­inu, þeir sækja í hlýj­una,“ segir Guð­mundur Haf­steins­son, versl­un­ar­stjóri búð­ar­innar.

Guð­mundur segir að hringt hafi verið í mein­dýra­eyði sem mun vænt­an­lega veiða fugl­anna með háfi og koma þeim aftur út í óveðrið. „Hann er á leið­inni og mun sleppa þeim út.“

Uppfært: Mein­dýra­eyðir hefur nú fangað fugl­ana í háf og varpað þeim út í vetr­ar­veðrið.

Að sögn starfs­manna er þetta óvana­legt en það ger­ist þó að einn og einn fugl álp­ist inn í búð­ina.

Slæmt veður er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er búist við því að vind lægi seinni part­inn. Veð­ur­stofa hefur gefið út storm­við­vörun sem gengur í aust­an­átt 15-25 metrar á sek­úndu með snjó­komu og skafrenn­ingi.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur bent almenn­ingi á að vera ekki á ferð­inni að nauð­synja­lausu. „Færð er að spill­ast í borg­inni og farnar að ber­ast beiðnir um aðstoð vegna fastra bíla í úthverf­unum. Við minnum fólk á að vera ekki að fara af stað að nauð­synja­lausu enda er veðrið enn að versna,“ segir á Facebook-síðu lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár