Eru arðgreiðslurnar réttlætanlegar? Tveir læknar hafa tekið sér nærri 200 milljóna arð frá hruni

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis­ráðherra hefur boðað róttækar breytingar á rekstrar­formi heilsu­gæslunnar á höfuð­borgar­svæðinu. Ætlar að banna arðgreiðslur út úr heilsu­gæslu­stöðvunum. Tals­verðar arðgreiðslur hafa verið út úr þeim tveimur einka­reknu heilsu­gæslu­stöðvum, Sala­stöðinni og Lágmúla­stöðinni sem reknar hafa verið á höfuð­borgar­svæðinu. Nokkur einka­rekin heilbrigðis­fyrirtæki hafa greitt út háan arð á liðnum árum. Af hverju á að taka heilsu­gæslu­stöðvarnar sérstak­lega fyrir og banna eigendunum að taka út arð?

Bann sett á arðgreiðslur heilsugæslustöðva
Bann sett á arð­greiðslur heilsu­gæslu­stöðva Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur sagt að arð­greiðslu­bann verði sett á einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar nú þegar fjölga á slíkum fyr­ir­tækjum. Fyrir á mark­aðnum á Íslandi eru heil­brigð­is­fyr­ir­tæki eins og Art Medica og Íslensk mynd­grein­ing sem hafa greitt út mynd­ar­legan arð til hlut­hafa á liðnum árum. Mynd: Pressphotos.biz - (GeiriX)

Arðgreiðslur út úr einu einka­reknu heilsu­gæslu­stöðvunum á höfuð­borgar­svæðinu nema annars vegar nærri 200 milljónum króna frá hruninu 2008 og hins vegar rúmlega 120 milljónum króna frá árinu 2002 og fram til ársins 2011. Þetta kemur fram í ársreikningum heilsu­gæslu­stöðvanna tveggja, annars vegar stöðinni í Sala­hverfi og hins vegar stöðinni í Lágmúla. Arðgreiðslurnar út úr móður­félagi heilsu­gæslu­stöðvarinnar í Sala­hverfi, Salus ehf., námu rúmlega 194 milljónum króna frá árinu 2008 til ársins 2014 á meðan arðgreiðslurnar út úr móður­félagi heilsu­gæslu­stöðvarinnar í Lágmúla, Heimilis­lækna­stöðinni ehf., námu ríflega 122 milljónum króna frá árinu 2002 til ársins 2011. Fyrir utan þessar tvær einka­reknu heilsu­gæslu­stöðvar eru starfandi 12 sjálf­stæðir heimilis­læknar sem eru á samningi við Sjúkatryggingar Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár