Sigríður á ráðstefnu með þjóðernispopúlistum um hvernig megi „endurvekja traust til stjórnvalda og lýðræðislega ábyrgð“

Frétta­vefurinn Politico hæðist að því að íslenska dómsmála­ráðherranum hafi verið boðið að flytja fyrir­lestur á ráðstefnu Evrópu­samtaka íhalds- og umbóta­sinna sem fram fer í Brussel þann 22. mars næst­komandi.

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra er á meðal ræðumanna á ráðstefnu Evrópu­samtaka íhalds- og umbóta­sinna sem fram fer í Brussel þann 22. mars næst­komandi undir yfir­skriftinni „Framtíð Evrópu֧“. Þar mun hún stíga á stokk ásamt fulltrúum hægri­flokka og þjóðernis­popúlista víðsvegar að úr Evrópu. Í lýsingu á atburðinum kemur fram að ráðstefnan feli í sér tækifæri til samtals um íhalds­sama sýn á hvernig endur­vekja megi „traust til stjórn­valda og lýðræðis­lega ábyrgð í Evrópu“.

Frétta­vefurinn Politico hæðist að veru Sigríðar Andersen á ráðstefnunni og bendir á að hún er meðal þeirra fjölmörgu ræðumanna sem eiga sér umdeildan feril og hneykslismál að baki. Eitthvað virðast þó staðreyndirnar hafa skolast til, því Politico fullyrðir að Sigríður sé „næstum því fyrr­verandi dómsmála­ráðherra eftir að hafa rétt svo varist vantrausts­tillögu í kjölfar þess að hún náðaði barna­níðing með leyni­legum hætti“. 

Þarna er væntanlega vísað til tveggja aðskildra mála, annars vegar þess að dómsmála­ráðuneytið hélt því leyndu, í trássi við ákvæði upplýsinga­laga, að faðir forsætis­ráðherra hefði skrifað undir meðmæli fyrir barna­níðinginn Hjalta Sigurjón Hauksson þegar hann sótti um uppreist æru og hins vegar þess að dómsmála­ráðherra braut stjórnsýslulög við skipun Landsréttar­dómara og varðist vantrausti á Alþingi vegna málsins í síðustu viku. 

Á meðal ræðumanna á ráðstefnunni er Angel Dzhambazki, búlgarskur Evrópuþing­maður og þjóðernis­sinni sem hefur sætt harðri gagnrýni fyrir ummæli um samkyn­hneigða, múslima og Roma-fólk. Árið 2016 kvartaði sænsk Evrópuþing­kona undan hatursoræðu hans í garð minnihluta­hópa og hvatti íhaldsmanna­þinghópinn á Evrópu­þinginu til að grípa til ráðstafana vegna málsins. Svo virðist þó sem hann njóti enn virðingar hjá Evrópu­samtökum íhalds­manna og umbóta­sinna í Evrópu. 

Annar ræðumaður á ráðstefnunni er Victor Ponta, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Rúmeníu sem hefur sætt rannsókn vegna gruns um skatta­lagabrot og misbeitingu valds en verið hreinsaður af grun um peninga­þvætti og fjársvik. Af norrænum gestum má nefna Evrópuþing­manninn Anders Primdahl Vistisen úr Danska þjóðar­flokknum og Samuli Virtanen, vara­utan­ríkis­ráðherra Finnlands sem var ávíttur af lögreglu í fyrra fyrir að fela sig í bílskotti þegar hann átti leynifund með forsætis­ráðherra Finnlands. Nokkrir af ræðu­mönnum koma úr þing­mannahópi stjórnar­flokksins í Póllandi, Laga og réttlætis. Einn þeirra er Ryzsard Czarnecki sem nýlega var rekinn úr stóli vara­forseta hjá Evrópu­þinginu eftir að hafa kallað kollega sinn á þinginu „shmaltsovnik“ sem er skammar­yrði yfir Pólverja sem notfærðu sér veika stöðu gyðinga þegar landið var hernumið af nasistum eða unnu með hernáms­liðinu. 

Sjálfstæðis­flokkurinn er einn af fáum hægri­flokkum í Vestur-Evrópu sem tilheyra Evrópu­samtökum íhalds- og umbóta­sinna, en þar eru meðal annars stjórn­málaflokkar og stjórn­málamenn sem þekktir eru fyrir þjóðernis­ofstæki, alræðis­tilburði og harða afstöðu gegn réttindum minnihluta­hópa.

Á meðal systur­flokka Sjálfstæðis­flokksins í samtökunum eru Lög og réttlæti, sem hefur beitt sér af mikilli hörku gegn rétti kvenna til fóstur­eyðinga, og flokkur Erdogans í Tyrklandi, Réttlætis- og framfara­flokkurinn, sem hefur sætt harðri gagnrýni fyrir alræðis­tilburði, mann­réttinda­brot og kúgun. 

Eins og Stundin hefur áður fjallað ítarlega um hefur Sjálfstæðis­flokkurinn hert stefnu sína í útlendinga­málum í tíð Sigríðar Andersen sem dómsmála­ráðherra. Í því samhengi ætti ef til vill ekki að koma sérstak­lega á óvart að hún taki þátt í viðburði með þjóðernis­popúlistum frá öðrum Evrópu­ríkjum. Sigríður Andersen hefur sætt gagnrýni fyrir lögbrot við skipun dómara. Systur­flokkar Sjálfstæðis­flokksins í Póllandi og Tyrklandi hafa hins vegar gengið miklu harðar fram gagnvart dóms­valdinu. Þannig hefur til dæmis flokkur Erdogans staðið fyrir pólitískum hreinsunum þar sem dómarar í þúsunda­tali voru hand­teknir eða þeim vikið frá störfum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár