Tíu mest lesnu pistlar á Stundinni á árinu

Costco, kynfrelsi kvenna, fall ríkis­stjórnarinnar og íbúðar­kaup. Þetta eru mest lesnu pistlar Stundarinnar á árinu sem er að líða.

1 Birna

Illugi Jökulsson skrifaði mest lesna pistil ársins á Stundinni sem birtist í kjölfar þess að Birna Brjáns­dóttir, sem leitað hafði verið í um viku, fannst látin. „Núna þegar við höfum öll kynnst Birnu Brjáns­dóttur af fallegum lýsingum fjöl­skyldu og vina á skemmtilegri og kátri stúlku, og við höfum fylgt Birnu hennar hinstu gönguferð, þá er tóm í lífi okkar allra,“ skrifaði Illugi meðal annars, um sorgina sem þjóðin upplifði í kjölfar fréttanna.

 

2 Karlmaður í kventíma

Hall­grímur Helgason sló í gegn á árinu með pistli sínum um það hvernig þrettán ára stúlka, í krafti sinnar verstu stundar, náði að fella heila ríkis­stjórn. „Hér urðu vatnaskil, femínisminn felldi ríkis­stjórn, nýi opni tíminn felldi þann gamla lokaða.“

 

3 Costco: Musteri græðginnar

Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar, vakti talsverða athygli fyrir að benda á ástandið sem blossaði upp í samfélagið í kjölfar opnunar Costco á Íslandi og bar saman magn­samfélagið og gæða­samfélagið: „Í magn­samfélaginu er neyslan hámörkuð. Þú þarft að keyra langt, eyða miklu bensíni og þarft lágt verð. Þú borðar mikið. Inntaka er hamingja. Þörfin er meiri.“

 

4

Karlar sem taka vald yfir líkömum kvenna

Ingibjörg Dögg Kjartans­dóttir, ritstjóri Stundarinnar, skrifaði leiðara í janúar um óttann sem ofbeldi elur af sér og mikilvægi þess að endur­heimta almanna­rýmið, því konur eigi að geta gengið á götum úti, einar að næturlagi, í hvaða ástandi sem er. „Ógnin er þarna en ótti er lamandi tilfinning. Ótti rænir þig frelsinu, kraftinum og gleðinni. Við getum ekki lifað í ótta. Við getum ekki fallist á að það sé ásættanlegur veruleiki kvenna að vera hræddar, hika eða hætta við, að þær þurfi að passa sig.“

 

5 Fjallkonan 2017

Í tilefni kvenna­frídagsins, 24. október, samdi Þórdís Elva Þorvalds­dóttir ljóð um gosið, um fjall­konuna árið 2017 og kraft hennar. 

Ég er framtíðin, ég er næsta stig,
og ég skil vel að þú óttist mig
því ég er bálið sem verður af litlum neista
Þegar níðingur fær æru sína uppreista

 

6 Sigur lyginnar

Í mars kom í ljós að það var enginn þýskur banki að kaupa í Búnaðar­bankanum þegar bankinn var einka­væddur, heldur var Ólafur Ólafsson athafna­maður og hópur í kringum hann að blekkja þjóðina til að komast yfir bankann. Jón Trausti Reynisson fjallaði um sigur lyginnar í leiðara á Stundinni að því tilefni. „Hluti af því að viðhalda óheiðarleikanum er að afla samúðar gagnvart þeim sem er óheiðarlegur.“

 

7
Lífið er betra þegar maður skuldar tugi milljóna

Snæbjörn Ragnarsson keypti sér íbúð á árinu og skrifaði um það pistil. Þar lýsir hann veruleika sem flestir á leigu- og húsnæðis­markaði hljóta að kannast við. „Þegar allt hefur svo loksins verið samþykkt kemur í ljós að það kostar mig miklu minna að þykjast eiga íbúð sem ég skulda tugi milljóna í heldur en að skulda ekkert og leigja. Hvernig í heitasta helvíti getur verið að það sé ódýrara að skulda en ekki? Og af hverju í manna­skítnum flaug ég þá ekki í gegnum þetta ógeðslega greiðslumat?“ spurði hann meðal annars.

 

8
Hneykslið í hneykslinu

Hall­grímur Helgason skrifaði um meðvirknina gagnvart stjórn­málamönnum í kjölfar þess að ríkis­stjórn Bjarna Benedikts­sonar féll vegna barna­níðinga­hneykslis. „Nú siglum við inn í enn einar kosningarnar þar sem fjöl­miðlar virðast ekki ætla að þora að nefna ástæðu þeirra af einhverri fjandans tillitssemi við háttsett fólk. Meðvirkni­laust Ísland virðist ekki í augsýn.“

 

9

Það sem Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki að þú vitir um heilbrigðismál

Gunnar Jörgen Viggósson skrifaði um útgjöld til heilbrigðis­kerfisins, þar sem hann rýndi í tölur frá Hagstofunni og bar saman við kynningar­efni frá Sjálfstæðis­flokknum. „Ein skýring er sú að lands­mönnum hefur fjölgað á tíma­bilinu. Önnur er sú að þjóðin er að eldast. Þriðja skýringin er gríðarleg fjölgun ferða­manna, en ferðamenn nýttu 10% rýma á gjörgæslu í fyrra. Enn önnur getur verið aðferðin sem notuð er til núvirðingar.“

 

10 Tilfinningabyltingin

Auður Jóns­dóttir skrifaði um það þegar það rann upp fyrir henni að hún átti erfitt með að hlusta á frásagnir af ofbeldi því það truflaði minningar hennar. Minningar sem hún var búin að fínpússa; bersögul og opin í augum flestra en um leið höfundur eigin lífs. „Á sokkabands­árum mínum fór fólk yfir mörkin hjá mér og ég yfir mörkin hjá því, þannig var veruleiki íslenskra unglinga sem heyrðu í besta falli einhvern segja mörk þegar þurfti að plana fyllerí í Þórsmörk og kannski ekkert skrýtið hversu margir héldu út í lífið í tætlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár