Vilja binda enda á áreitni á vinnustað

Kvenkyns málflutnings­menn í Bretlandi hafa nú hrundið af stað átaki til að binda enda á áreitni og valda­ójafnvægi í stéttinni.

Konur í hópi breskra málflutnings­manna hafa nú tekið sig saman og stofnað hóp með það að leiðar­ljósi að binda enda á áreitni sem þær verða fyrir í starfi. Þetta kemur fram í frétt The Times sem birtist í dag.

Ekki er úr vegi að bera þetta átak við þá fjölmörgu fabebook-hópa sem hafa verið stofnaðir síðastliðna mánuði og misseri á Íslandi varðandi kynbundið ofbeldi og áreitni. Herferðin nefnist Behind the Gown sem hægt er að þýða sem Bakvið skikkjuna og vísar í þann fatnað sem breskir málflutnings­menn verða að klæðast í dómsal.

Konurnar telja valda­ójafnvægi vera innan stéttarinnar og að það eigi ekki einungis við um kynferðis­lega áreitni. Þessu verði að breyta.

Í fréttinni kemur fram að kvenkyns málflutnings­menn tilkynni ekki áreitni sem þær verða fyrir í starfi, þrátt fyrir að þeim sé skylt að gera það. Í könnun sem gerð var árið 2016 meðal málflutnings­manna hafi komið fram að 40 prósent þátt­takenda höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi. Þrátt fyrir það hafi einungis tvær kvartanir borist til Bar Standards Board, sem er eins konar lögmanna­félag þar í landi.

Ástæðurnar fyrir þessu eru nokkrar og samofnar, meðal annars spilar smæð stéttarinnar inn í og þurfa yngri starfs­menn iðulega að treysta á þá eldri þegar kemur að starfs­frama, segir í fréttinni. Vegna þess séu konur ragari við að tilkynna brot sem þær verða fyrir.

Þann 7. desember síðastliðinn sendu konur í réttar­vörslu­kerfinu á Íslandi frá sér yfir­lýsingu þar sem þær kröfðust þess að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreiti yrði sett í forgang og að allir vinnu­veitendur tækju ábyrgð á að uppræta vanda­málið. „Kynbundið áreiti, mismunun eða ofbeldi á ekki að líðast og krefjast konur þess að á þær sé hlustað og að allir samverka­menn taki ábyrgð á því að breyta til betri vegar,“ sagði í yfir­lýsingunni.

Bransinn á Íslandi mjög karllægur

Nokkur gagn­rýni lét á sér kræla varð­andi dag­skrá Laga­dags­ins 2018 sem hald­inn var þann 27. apríl síðastliðinn á vegum Lög­manna­fé­lags Íslands, Lög­fræð­inga­fé­lags Íslands og Dóm­ara­fé­lags Íslands­. Nokkrar konur höfðu sam­band við nefnd sem sá um skipu­lagn­ingu Laga­dags­ins og báðu um að sér­stök mál­stofa yrði við­höfð um #metoo-um­ræðu. Þegar dag­skráin var síðan kynnt bólaði ekk­ert á slíkri umræðu eða mál­stofu og sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans þá voru svörin á þá leið að mál­efnið myndi ekki trekkja nægi­lega vel að og of langt væri síðan yfir­lýs­ing kvenna innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins hefði verið til að eiga erindi á við­burð­inn.

Úr varð að hafa örmálstofu um #metoo-byltinguna þar fjallað var um möguleg viðbrögð við henni innan réttar­vörslu­kerfisins.

Dagný Ara­dóttir Pind var ein þeirra sem gagn­rýndi dag­skrána áður en henni var breytt. Hún sagði í samtali við Kjarnann á sínum tíma að mál­efnið hefði átt fullt erindi og rætt hefði verið innan stétt­ar­innar síð­ustu mán­uði að mikil þörf væri á því að ræða #metoo enn frek­ar. „Við áttum okkur allar á því hvernig brans­inn er en hann er sögu­lega mjög karllæg­ur,“ sagði hún.

Hún sagði enn fremur að #metoo-um­ræður skipti enn máli, sér­stak­lega í ljósi þess að margar konur hefðu ekki viljað skrifa undir yfir­lýs­ing­una á sínum tíma eða deila sögum vegna smæðar sam­fé­lags­ins. „Svona menn­ingu verður ekki umturn­að, einn, tveir og tíu,“ bætti hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár