Strákarnir okkar til Kína

Í Kína er allt svo stórt í sniðum og hefur mikið aðdráttarafl.

Jafnvel hinum megin á hnettinum, á Íslandi, höfum við séð heilu og hálfa þjóð­félags­hópana sogast ómótstæðilega inn í þetta þyngdar­svið. Einu sinni voru það trúboðarnir okkar, síðan kommúnistarnir, þá kapítal­istarnir. Og núna er sem sagt komið að knattspyrnu­mönnunum.

Íslenska karla­landsliðið er á leiðinni hingað austur að taka þátt í fyrsta svokallaða „Kínabikar-mótinu“ er hefst með leik Íslands og Kína 10. janúar nk. Ég verð að viðurkenna að sem Íslend­ingur ber ég kvíðboga fyrir þessu móti.

Vita strákarnir okkar út í hvað þeir eru að fara?

Fótbolti er ekki bara leikur

Eins og allir ættu að vita er fótbolti ekki bara leikur. Við viljum sigur. Það er markmiðið. Fátt jafnast á við að vera í vinnings­liðinu. Við erum öll þannig gerð. Ekki bara Íslendingar. Kínverjar líka.

Síðustu áratugi hafa þeir séð krafta­verkin gerast nánast á færibandi. Kína - stærsta viðskipta­veldi heims. Hundruð milljóna lyft úr fátækt. Mannaðir rannsóknar­leiðangrar sendir á norður­pólinn, suður­pólinn, niður á hafs­botninn og lengst út í geim. Hæstu byggingarnar, lengstu brýrnar, ósigranlegt borðtennislið o.s.frv.

Bara í fótboltanum virðist ekkert vera að gerast.

Karlalandsliðiðinu virðist um megn að komast í fremstu röð. Í dag er það í 82. sæti styrkleika­lista FIFA (og samkvæmt mínum útreikningum því rétt tæplega 17 þús. sinnum verra en íslenska liðið miðað við FIFA-stig og mann­fjölda).

Rétt er að halda því til haga að konurnar hafa náð mun betri árangri en karlarnir. Komust þær m.a. í undan­úrslit á HM í Kanada á það síðasta ári og náðu silfri á HM í Banda­ríkjunum 1999.

Við skulum hafa það á hreinu að fótbolti er ekki eitthvað gífurlega framandi í kínverskri menningu eða andstæður hugmynda­fræði Kommúnista­flokksins. Nei því fer fjarri.

Kínverjar halda því reyndar fram að það hafi verið þeir sem fundu upp knatt­spyrnuna (eins og púðrið, pappírinn og margt annað sem valdið hefur straum­hvörfum í heiminum). Segjast þeir hafa iðkað keisaralegt knatt­spark sér til hressingar og yndisauka frá fornu fari.

Þá fara sögur af því að Maó formaður hafi æft stöðu markmanns á yngri árum. Og Deng Xiaoping eftir­maður hans mun einhverju sinni hafa mælt: „Ég elska fótbolta en þegar ég horfi á Kína spila tek ég andköf“.

Nýja knattspyrnuhagkerfið

Talað er um „risin þrjú“ í kínverska boltanum.

Það fyrsta var þegar lands­liðið komst í fyrsta og eina skiptið í loka­keppni HM (Japan/Kórea 2002). Skemmst er frá því að segja að það tapaði öllum leikjunum á mótinu og skoraði ekkert mark. Tók þá við niður­lægingar­tímabil er einkenndist af innan­búðadeilum, endur­teknum hneykslis­málum og dvínandi áhuga almennings.

Annað risið var upp úr 2010 þegar skorin var upp herör gegn spillingu í boltanum. Eftir að búið var að hreinsa til hóf almenningur að streyma á vellina að nýju. Að meðaltali mæta nú um 22 þús. manns á hvern leik (svipað og á Ítalíu og í Frakk­landi).

Segja má að þriðja risið hafi hafist eftir að núverandi formaður Kommúnista­flokks Kína Xi Jinping komst til valda haustið 2012. Hans nálgun var einföld: „Kína kemst á HM. Kína heldur HM. Kína vinnur HM.“ Svo mörg voru þau orð.

Síðan þá hefur boltinn verið „málið“. Virðist manni á stundum sem verið sé að gera merka tilraun til að beisla hann undir hagkerfið. Helstu auðjöfrar landsins keppst við að fjárfesta í greininni. Nú eru t.d. á teikniborðinu einar 50.000 fótbolta­akademíur í landinu sem rísa skulu á næstu 10 árum til að þjálfa nýja kynslóð leikmanna (heims­meistarana).

Og meðan hún er að vaxa úr grasi er bilið brúað með „yfir­færslu þekkingar“, þ.e. með kaupum á leik­mönnum frá S-Ameríku og Evrópu svo og með fjár­festingum í rótgrónum erlendum klúbbum eins og Mancester City, Atletico Madrid og Slavia Prague.

Hrakningar

Jafnvel þó að skilningur ríki fyrir því að það geti tekið 1-2 kynslóðir að ná heims­meistara­titlinum „heim“ eru tals­verðar væntingar um að kínverska karla­landsliðið sýni framfarir.

Segja má að það sé lágmarks­krafa að það haldi sér inni í helstu stórmótum í Asíu. Ef það tekst ekki er hætt á að línan frá Xi formanni virki næsta fjarstæðu­kennd. Umfjöllunin heima fyrir um liðið og allt planið gæti snúist upp í háð og spott.

En það hefur sannanlega verið á brattan að sækja og frammistaða liðsins í undan­keppninni fyrir HM í Rússlandi 2018, sem nú stendur yfir, hefur heldur betur reynt á þolrif þjóðarinnar.

Liðinu tókst reyndar með ævintýra­legum hætti að smokra sér fjallabaks­leið inn í þriðju umferð keppninnar síðasta vor. En nú þegar sú umferð er hálfnuð situr Kína neðst í sínum riðli, á eftir bæði Qatar og Sýrlandi (landi sem hefur verið lamað af borgara­stríði síðustu 5-6 ár).

Í þessari stöðu var gripið til gamal­reynds ráðs: Reka þjálf­arann. Sá sem tekur við starfinu er enginn annar en hinn sigursæli Marcello Lippi er leiddi Ítali til sigurs á HM 2006. Og -- vel að merkja -- sem leiddi kínverska félags­liðið Guangzhou Evergrande til sigurs í Asíu­keppni meistara­liða 2013.

Af litlum neista

Það er engin spurning að Lippi hefur mikla hæfileika og Kínverjar respektera hann. Strax í fyrsta (og til þessa eina) leiknum sem hann hefur stýrt liðinu þóttust menn sjá nýjan neista kvikna hjá leik­mönnum.

Kínabikar-mótið, sem Ísland tekur þátt í nú í janúar, er einmitt haldið til að gefa Lippi tækifæri til að vinna með liðið áður en seinni hluti þriðju umferðar undan­keppninnar fyrir HM 2018 hefst hér í Asíu. Fengnir hafa verið verðugir mótherjar að glíma við: Chile sem er í fjórða sæti á styrkleika­lista FIFA, Króatía sem er í 14 sæti og Ísland í 21. sæti.

Gárungarnir sögðu að þessi lið hafi verið valin til að hífa Kína upp á FIFA-listanum, þ.e. lönd sem eru mun sterkari en Kína á pappírnum en sem ólíklegt þykir að sendi sitt sterkasta lið á mót sem þetta sem skipulagt er utan við alþjóða­lega landsleikja­daga FIFA.

Af fréttum er hins vegar ljóst að svo er ekki. Í hópnum sem hann hefur valið fyrir mótið er ekki að finna mörg fræg nöfn. Þar er t.d. ekki fyrir­liðinn gamli Zheng Zhi, sem valinn var knattspyrnu­maður Asíu 2013. Ekki heldur varnar­jaxlinn Feng Xiaoting eða marka­hrókurinn Gao Lin.

Lippi ætlar að prófa unga og óreynda leikmenn. Hann hugsar þetta kannski þannig að ef slíkum hópi tekst að velgja liðum frá Evrópu og S-Ameríku undir uggum þá er hann búinn að koma sér upp kjarna af ungum leik­mönnum með gott sjálfs­traust sem hann getur síðan unnið með á næstu árum.

Mótið verður leikið með útsláttar­fyrir­komulagi þannig að hvert lið leikur tvo leiki. Eins og fyrr segir verður viðureign Íslands og Kína 10. janúar opnunar­leikurinn. Seinni undan­úrslita­leikurinn verður daginn eftir. Sigurveg­ararnir úr hvorum leik munu svo leika til úrslita á mótinu þann 15. janúar en leikur um þriðja sætið fer fram þann 14. janúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár