Innleiddi Maó nútímaknattspyrnu í Kína eða var það Deng Xiaoping?

Í Peking er gengið í garð tímabil hins mikla innikulda. Sjálfir kalla Kínverjar þetta tímabil reyndar qing ming er mætti þýða sem „heiðskýrt“ eða „heiður himinn“ en það nafn á að sjálfsögðu rætur í gamla samfélaginu. Þá markaði þessi tími bara enn einn sigur vorsins í stríðinu við veturinn. Nú til dags aftur á móti verður gríðarlegt bakslag í vorkomunni einmitt á þessum tíma­punkti. Ástæðan er sú að þá slökkva stjórn­völd á miðstöðinni sem kynt hefur híbýli Norður-Kínverja yfir veturinn. Hefur þetta þau áhrif að það kólnar hratt inni (þó það haldi vissulega áfram að hlýna úti). Inni­hitinn fer úr þægilegum 22+ gráðum á selsíus niður fyrir hinar krítísku 18 gráður um mánaðar­mótin mars-apríl því sólin er enn of máttlaus til að smjúga í gegn um þykka veggi nútíma­bygginga. Setur fólk upp loðhúfur og trefla er það gengur inn í hús en fækkar klæðum þegar það fer út.

Eina ráðið gegn inni­kuldanum er að flýja heimili sitt. Mjög vinsælt er þá að fara í vorlautarferðir. Breiða heilu fjöl­skyldurnar í 3-4 ættliðum úr sér á sólríkum reitum undir nýútsprungnum blómum kirsuberja­trjánna og sötra te daglangt. Einnig er vinsælt að halda hita á kroppnum með íþrótta­iðkun af ýmsu tagi og verða gestir frá fjarlægum löndum þá stundum vitni að allsérkennilegum líkams­æfingum. Hlaupa sumir innfæddir afurábak og blaka höndunum um leið eða klappa. Ber ósjaldan við að annars dagfarsprúðir karlar sem tilsýndar virðast vera á rölti úti í garði dragi skyndi­lega stórar svipur upp úr pússi sínu og byrji að keyra þær af mikilli grimmd út í loftið. Láta þeir smella í ólunum og verður af þessu hávaði eins og í byssu­bardaga. Þá er og algengt að eldri konur safnist í hnapp á togum úti og leiki sér að því að halda tuðru á lofti. Minnir þetta á fótbolta­kempur hita upp fyrir leik, þó uppruna­lega sé æfingin sennilega skyldari kínverskri forn­knattspyrnu heldur en vestrænum nútíma­bolta.

Sölvi Geir Ottesen, sem sést hér skalla boltann í leik með íslenska lands­liðinu, gekk til liðs við Jiangsu-dáða­drengina fyrir þetta tímabil. Það gerði Viðar Örn Kjartansson líka.

Sölvi Geir Ottesen, sem sést hér skalla boltann í leik með íslenska landsliðinu, gekk til liðs við Jiangsu-dáðadrengina fyrir þetta tímabil. Það gerði Viðar Örn Kjartansson líka.
Sölvi Geir Ottesen, sem sést hér skalla bolt­ann í leik með íslenska lands­lið­inu, gekk til liðs við Jiangsu-dáða­dreng­ina fyrir þetta tíma­bil. Það gerði Viðar Örn Kjart­ans­son líka.

Forn­knatt­spyrnan eða cuju varð til á hinum frjósömu sléttum Gula­fljóts 2-3 hundruð árum fyrir Krists­burð. Skrifaðar heimildir eru fyrir því að sigur­sælir konungar er þar byggðu ríki sitt hafi stundað „cuju“ sér til hressingar og indisauka. Síðar munu þessar konunglegu æfingar hafa þróast í vinsæla íþrótta­grein er náði fullum blóma á tímabili Song-keisar­anna (960-1279). Var þá að finna spark­velli á hverju götuhorni í Kína og breiddist knatt­spark geysihratt til annarra landa svo sem Japans, Kóreu og Víetnams. Atvinnu­sparkarar komu til sögunnar og lét keisarinn byggja himneskan fótbolta­völl í hallar­garði sínum og bauð þangað bestu spörkurum heims. Cuju-stjörnur voru helsta fyrirmynd æsku­lýðsins í austri allt þar til mið-asískir og evrópskir barbarar lögðu Kína undir sig og tímabil hnignunar tók við. Hver styrjöldin rak aðra. Glansinn máðist af mennigunni. Skuggi lagðist yfir knatt­spark.

Segja sumir að það hafi verið Maó sem svo innleiddi nútíma­boltann í Kína. Aðrir draga það í efa því hann hafi aldrei dvaldist erlendis svo nokkru næmi. Miklu líklegra sé að það hafi verið Deng Xiaoping er eigi heiðurinn af þessu en hann lærði í París og mun hafa farið á alla knattspyrnu­leikina á ólympíu­leikunum 1924. Hvað um það, knatt­spark hefur endur­heimt sinn sess í kínversku samfélagi. Almenningur elskar fótbolta. Hann vill að Kína komist úr hundraðasta sæti á styrkleika­lista FIFA og leiðtogar landsins segjast vera að vinna í málinu.

Til að flýta þróun boltans hafa Kínverjar leitað til fjölda erlendra þjálfara, sálfræðinga, marka­skorara og leik­stjórnenda. Þar hafa Íslendingar lagt gjörva hönd á plóg því tveir af okkar bestu spilurum gera nú garðinn frægan hjá kínverska úrvals­deildar­liðinu Jiangsu-dáðar­drengjum. Skoruðu Sölvi Geir Ottesen og Viðar Örn Kjartansson báðir mark í sigri liðsins gegn Shijiazhuang snemma í síðasta mánuði. Ég styð tækni­yfirfærslu af þessu tagi en leiði stundum hugann að því hvort leynivopn Kínverja liggi e.t.v. nær en margan grunar. Eru konurnar sem halda á sér hita á vorin í boltaleik týndi hlekkurinn milli kínverskrar forn­knattspyrnu og framtíðar-heims­meistara­liðs Kína? Varðveita þær gamla tækni sem Kínverjum mun fyrr eða síðar takast að snúa upp á nútímann? Eða geyma þær e.t.v. reglurnar sem heimurinn mun að lokum spila fótbolta eftir?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár